Dóttirin neyðist til að hitta geranda sinn í skólanum: „Við erum dauðhrædd um að missa hana“

Krist­jana Gísla­dóttir, móðir tæp­lega 14 ára stúlku, segir að sam­nem­andi dóttur hennar hafi brotið á henni kyn­ferð­is­lega í grunn­skóla þeirra í vor og að barna­vernd Kópavogs hafi ekki talið ástæðu til að kanna málið. Krist­jönu þykir Snæ­lands­skóli ekki koma til móts við dóttur hennar, sem þolir ekki að hitta dreng­inn dag­lega, og getur því ekki mætt til skóla.

<span>Dóttirin neyðist til að hitta geranda sinn í skólanum:</span> „Við erum dauðhrædd um að missa hana“
Móðir Krist­jana segir að málið sé að gera út af við fjöl­skyldu hennar. Þau séu að horfa á barnið sitt hverfa. Mynd: Golli

Hún má ekki mæta í skól­ann, hún má ekki vera með vinum sínum, hún má ekki halda í rútín­una sína, hún er ein­angruð heima. Barnið er að reyna að deyja. Við erum að missa barnið okkar, hreint út sagt.“

Þetta segir Krist­jana Gísla­dóttir, móðir tæp­lega 14 ára stúlku, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir að dóttir hennar, sem er meðal ann­ars greind með ein­hverfu, ADHD, felmt­urs­röskun og kvíða­röskun, hafi orðið fyrir því að skóla­bróðir hennar braut á henni kyn­ferð­is­lega inni á sal­erni í Snæ­lands­skóla í vor. Stúlkan er nú í sjálfs­vígs­hættu og sýnir sjálf­skað­andi hegðun, segir Krist­jana. Hún bætir því við að áður en meint brot átti sér stað hafi dóttir hennar lengi kvartað undan drengnum.

„Ekkert af þessu er skráð og sent á mennta­svið. Það er ekki farið eftir neinum verk­reglum,“ segir Krist­jana um hegðun drengs­ins og vísar til mennta­sviðs Kópa­vogs­bæjar.

Barnavernd opnaði ekki mál

…
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KJP
    Kolbrún Jóna Pétursdóttir skrifaði
    Þetta er er hræðilegt ástand :(
    Er það bara alveg í lagi að foreldrar og fjölmiðill upplýsi svona um viðkvæmar persónuupplýsingar er varða barnið ?
    Barnið er auðþekkjanlegt, allar þessar upplýsingar opinberar... Blaðamaður mætti gera betur...
    0
  • Thordis Thordardottir skrifaði
    Þetta er svo sorglegt, algjört máttleysi og skólinn er að bregðast telpunni og gerandanum sem fær þau skýru skilaboð að hann megi misþyrma öðrum. Finnst einhvernveginn að grunnskólar þurfi ða setja sér verklag um hvernig bregðast skuli við ofbeldi barna gegn öðum börnum.
    5
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hvað er að þessum skólastjórnendum?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár