„Ímyndaðu þér hvað Skagfirðingar yrðu hamingjusamir“

Meiri­hlut­inn í skipu­lags­nefnd Skaga­fjarðar klofn­aði í afstöðu sinni til til­lögu VG og óháðra um að lokka lág­vöru­verðs­verslun inn á nýtt atvinnu- og þjón­ustu­svæði á Sauð­ár­króki. Málið verður tekið fyrir á fundi sveit­ar­stjórnar um miðjan októ­ber. Álf­hildur Leifs­dóttir full­trúi VG og óháðra kveðst spennt að sjá hver nið­ur­staðan verði þar.

„Ímyndaðu þér hvað Skagfirðingar yrðu hamingjusamir“
Skaga­fjörður Álf­hildur Leifs­dóttir er odd­viti VG og óháðra í sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar. Þar engin lág­vöru­verðs­verslun, bara Skag­firð­inga­búð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

Fulltrúi Sjálf­stæð­is­flokks í skipu­lags­nefnd Skaga­fjarðar kaus á fimmtu­dag með til­lögu VG og óháðra í skipu­lags­nefnd Skaga­fjarðar, um að sveit­ar­fé­lagið reyni að lokka til sín lág­vöru­verðs­verslun með íviln­unum við úthlutun lóða á nýju athafna­svæði á Sauð­ár­króki. Tillagan var því sam­þykkt og bíður afgreiðslu sveit­ar­stjórnar, um miðjan októ­ber.  

Þetta eru nokkur tíð­indi, enda er engin lág­vöru­verðs­verslun í Skaga­firði eða á Norð­ur­landi vestra yfir höfuð, ef út í það er farið. Hins vegar rekur Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hina rót­grónu Skag­firð­inga­búð, sem selur Skag­firð­ingum og nær­sveit­ar­fólki flest sem þarf til dag­legs lífs. 

Heim­ildin veit til þess að í Skaga­firði séu gamlar sögur, nokkuð lífseigar, um að við­skipta­hags­munir Kaup­fé­lags­ins og ítök þess séu ráð­andi þáttur í því að lág­vöru­verðs­verslun hafi ekki opnað á skag­firska efna­hags­svæð­inu til þessa.

Engin er alla­vega lág­vöru­verðs­versl­unin og því telur Álf­hildur Leifs­dóttir, full­trúi VG og óháðra í sveit­ar­stjórn, vert að reyna að breyta. Hún lagði til­lög­una fram, fékk hana …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Áhugavert. Svæði þar sem allt hefur hverfst um einn mann og hans umsvif í nafni "kaupfélagsins". En þarna býr náttúrulega venjulegt fólk sem hefur sínar þarfir og vill fá þær uppfylltar á hagkvæman hátt eins og aðrir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár