„Þær ljósmyndir sem birtust með greininni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður“

„Ráðherra telur afar mik­il­vægt að fólk búi við við­un­andi hús­næð­is­að­stæður. Þær ljós­myndir sem birt­ust með grein­inni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður,“ segir í svari frá félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu þar sem óskað var eftir við­brögðum ráð­herra við hvernig aðbún­aður fólks sem bjó á áfanga­heim­ilum Betra lífs hefur verið, í kjöl­far umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar. Vinna stendur yfir í ráðu­neyt­inu við að kort­leggja hvaða vel­ferðar- og félags­leg þjón­usta ætti að vera háð rekstr­ar­leyfi og eft­ir­liti.

„Þær ljósmyndir sem birtust með greininni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður“
Betra líf Herbergi eins íbú­ans á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut 69. Íbúar greiddu á bil­inu 140-160 þús­und krónur fyrir her­bergið, í reiðufé til for­stöðu­manns­ins. Mynd: Golli

 „Ráðherra þykir mik­il­vægt að setja reglur um rekstur og eft­ir­lit með áfanga­heim­ilum.“ Þetta kemur fram í svari félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar í tengslum við umfjöllun um áfanga­heim­ili Betra lífs. Í gild­andi lagaum­hverfi er ekki kveðið á um leyf­is­skyldu eða eft­ir­lit með rekstri og umsjón áfanga­heim­ila. Þá er ekki heldur skýr skil­grein­ing á því í lögum hvað áfanga­heim­ili sé. 

Heim­ildin greindi frá því að nokkrir ein­stak­lingar greiddu 140-160 þús­und krónur hver í reiðufé fyrir her­bergi á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut 69. Húsið var í nið­ur­níðslu og engar bruna­varnir til staðar. Þrátt fyrir að vera með leigu­samn­ing fengu íbúar, sem áttu ekki í önnur hús að venda, fimm daga til að flytja út þegar húsið var rifið. Sylwia Burzykowska neydd­ist til að flytja af Kópa­vogs­braut­inni í tjald og þeir Baldur Sig­urð­ar­son og Sigfús Bergmann Svav­ars­son fluttu …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábendingum um „ógeðslegar“ aðstæður
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábend­ingum um „ógeðs­legar“ aðstæður

Árni Dav­íðs­son, deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigð­is­eft­ir­liti Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness, segir kallað verði eftir breyt­ingu á lögum til að bæta áfanga­heim­ilum á lista yfir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. Auk þess mun eft­ir­litið kalla eftir skýr­ari leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er varðar aðkomu eft­ir­lits­ins að íbúð­ar­hús­næði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár