„Auðvitað fullkomlega galið“

Þing­maður Vinstri grænna gagn­rýnir að hægt sé að reka áfanga­heim­ili án þess að þurfa til þess leyfi og að ekk­ert eft­ir­lit sé með rekstr­inum. Hún hefur tví­vegis lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem miðar að því að lög um slíkt séu sett. „Það verður auð­vitað að vera ljóst að allir spili eftir sömu reglu og það sé hvergi rekið nokk­urt úrræði þar sem að lífi og heilsu fólks er ógnað af bara van­rækslu og eft­ir­lits­leysi,“ segir Jódís Skúla­dóttir.

„Í gild­andi lagaum­hverfi er ekki kveðið á um leyf­is­skyldu eða eft­ir­lit með rekstri og umsjón áfanga­heim­ila.“ Þetta kemur fram í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur tví­vegis lagt fram á Alþingi. 

Tillagan í heild sinni hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra að und­ir­búa laga­setn­ingu um leyf­is­skyldu og eft­ir­lit með rekstri áfanga­heim­ila, skil­grein­ingu þeirra og hlut­verk.” 

Jódís bendir á að ekki sé einu sinni almenni­leg skil­grein­ing í lögum á því hvað áfanga­heim­ili sé. „Þarna er verið að þjón­usta rosa­lega ólíka hópa fólks í mjög ólíkri stöðu. Ég get nefnt dæmi um ein­stak­linga sem eru að koma úr áfeng­is­með­ferð og þurfa svokölluð þurr úrræði. Ég get nefnt fanga sem eru að ljúka afplánun dóma. Ég get nefnt ein­stak­linga sem eru í virkri neyslu og þurfa aðstoð og ann­ars konar úrræði, og laga­verkið er ein­fald­lega of veikt og eft­ir­liti ábóta­vant,“ segir hún. 

Jódís er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Þeir sem lögðu hana fram með Jódísi eru þing­menn Vinstri grænna. Þarna er því um til­lögu af hálfu þing­manna stjórn­ar­meiri­hlut­ans að ræða. 

Heim­ildin hefur að und­an­förnu fjallað ítar­lega um mál­efni áfanga­heim­ila Betra lífs. Þar kom fram að deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigðis­eft­ir­liti Garða­bæj­ar, Hafn­ar­fjarð­ar, Kópa­vogs, Mos­fells­bæj­ar og Seltjarn­ar­ness seg­ir kall­að verði eft­ir breyt­ingu á lög­um til að bæta áfanga­heim­il­um á lista yf­ir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. 

Í lok maí­mán­aðar kærði slökkvi­liðið for­stöðu­mann Betra lífs, Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, til lög­reglu fyr­ir að stofna lífi og heilsu fólks í hættu í gróða­skyni eft­ir brun­ann í Vatna­görð­um 18 í fe­brú­ar 2023.

Slökkvi­liðið hefur eins og heil­brigð­is­eft­ir­litið tak­mark­aðar heim­ildir til þess að fara í skoðun á íbúð­ar­hús­næði, líkt og áfanga­heim­ili Betra lífs sem var rekið á Kópa­vogs­braut 69, þar til húsið - sem var í nið­ur­níðslu - var rifið í maí­byrjun. Til þess að fara í skoðun þarf leyfi eig­anda, en án þess þarf slökkvi­liðið úrskurð dóm­ara, sem hefur hingað til ekki feng­ist.

 Málaflokkur sem sker sig úr

Hvað finnst þér um að það sé hægt að reka áfanga­heim­ili, og kalla það þessu nafni, án þess að þú þurfir leyfi og að það sé ekk­ert eft­ir­lit með þessum rekstri?

„Það er auð­vitað full­kom­lega galið,“ segir Jódís. Hún leggur áherslu á að for­sendan til að geta stutt við þá ein­stak­linga sem þurfa á þjón­ustu áfanga­heim­ila að halda sé að vel sé haldið utan um hlut­ina, að „við öll hljótum að ætl­ast til þess.“

„Við myndum aldrei sætta okkur við í neinum öðrum mála­flokki innan heil­brigð­is­þjón­ustu að þar gæti hver sem er opnað í raun­inni hvað sem er og kallað sig ein­hvers konar heil­brigð­is­þjón­ustu,“ segir hún. 

Jódís Skúla­dóttir segir óásætt­an­legt að engin lög gildi um rekstur áfanga­heim­ila eða eft­ir­lit með þeim,

Ástæðan fyrir því að Jódís lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una, fyrst árið 2022 og aftur árið 2023, er að hún þekkir mála­flokk­inn ágæt­lega og hefur látið sig þessi mál varða, löngu áður en hún fór að taka þátt í stjórn­málum. „En í gegn um tíð­ina hef ég líka upp­lifað að það séu brotala­mir í þess­ari starf­semi og það er ýmis­legt sem er ábóta­vant, þá sér­stak­lega hvað varðar eft­ir­litið,“ segir hún. 

„Þau til­felli þar sem fram­koma við skjól­stæð­inga hefur varðað við lög vegna mis­neyt­ingar og ann­ars ofbeldis eru fjölda­mörg“
Úr grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni

Annað sem er ábóta­vant við að hennar mati eru ekki aðeins atriði á borð við aðbúnað - hús­næði og bruna­varnir - heldur sé margt sem megi gera athuga­semdir við þegar kemur að reglum hvers og eins áfanga­heim­ilis, en þeim er í sjálf­vald sett hvaða reglur gilda í starf­inu

„Það er auð­vitað óeðli­legt að það séu gerðar kröfur um ein­hvers konar trú­ar­skoð­anir eða ákveðna funda­sókn 12 spora sam­taka. Þó að ég skilji á hvaða for­sendum þetta er þá verðum við að hafa ein­hvers­konar reglu­verk utan um það að veikir ein­stak­lingar sem þurfa að þiggja þjón­ustu séu ekki settir í ein­hvern annan flokk en aðrir sjúk­lingar,“ segir Jódís og vísar til þess hvernig mun minni kröfur eru gerðar til umgjarðar þeirra sem veita þessum við­kvæma hópi þjón­ustu.

Í grein­ar­gerð­inni með til­lög­unin er fjallað um að í sögu­legu sam­hengi „hefur eft­ir­liti með úrræðum til handa fólki með fjöl­þættan vanda verið ábóta­vant. Þau til­felli þar sem fram­koma við skjól­stæð­inga hefur varðað við lög vegna mis­neyt­ingar og ann­ars ofbeldis eru fjölda­mörg.“

Það stendur hér í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni: „ Á síð­ustu árum hafa komið upp dæmi þess að á áfanga­heim­ilum sem rekin eru í þágu fólks með fíkni­vanda hafi verið til­finn­an­legur skortur á eft­ir­liti með aðbún­aði, hrein­læti og öryggi.“ Er þarna verið að vísa í ein­hvern ákveðin áfanga­heim­ili?

„Ég ætla nú ekki að tjá mig sér­stak­lega um ákveðin áfanga­heim­ili en við höfum auð­vitað öll lesið í fjöl­miðlum skelfi­legar lýs­ingar. Það hafa komið upp bruna­til­vik, það hafa komið upp atriði þar sem öll umgjörð, hrein­læti og annað er algjör­lega óboð­legt, og á meðan við erum að gera út á að þetta sé ein­hvers konar þjón­usta fyrir ein­stak­linga og jafn­vel að hið opin­bera sé að styrkja það fjár­hags­lega þá verðum við bara að gera meiri kröfur. Það er alveg ljóst,“ segir hún.

Í bæði skiptin sem til­lagan var lögð fram, núna síð­ast bara síð­asta haust, þá fór hún til fyrri umræðu á alþingi, fór svo til vel­ferð­ar­nefndar, og síðan ekki sög­una meir. Það hljóta að vera von­brigði.

„Já, auð­vitað eru það von­brigði og auð­vitað eru ótal mál góð mál lögð fyrir á hverju þingi sem ekki næst að klára. Málið hefur þó fengið góða með­ferð og í fyrra skiptið sem málið var lagt fram þá komu mik­il­vægar umsagnir um til­lög­una inn til vel­ferð­ar­nefndar, og málið er örlítið breytt eftir að til­lit var tekið til umsagn­anna þannig að auð­vitað er vinnslan líka mik­il­væg. Það er ekki nóg að bara mál séu keyrð í gegn, það þarf líka að hlusta á fag­að­ila og þau sem veita umsagnir. En þingið er nú ekki búið. Ég mun halda áfram að leggja hana fram ef hún klár­ast ekki núna, og ég held að það sé alveg póli­tískur vilji til þess, og við erum þvert á flokka sam­mála um það að það þarf auð­vitað að hafa alla umgjörð um þennan sér­stak­lega við­kvæma hóp bara eins og best verður á kosið,“ segir Jódís.

Nú er þetta til­laga sem miðar að ákveðnum aðgerðum af hálfu félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Geturðu tjáð þig um það hvort hann hefur brugð­ist við sér­stak­lega?

Hann hefur bara tekið mjög vel í til­lög­una og ég geri ráð fyrir því að það standi ekki á honum að fara í þessa vinnu ef að til­lagan nær fram að ganga. 

„Nei, staðan er ekki ásætt­an­leg og það er nú þess vegna sem ég legg fram þessa þings­á­lykt­un­ar­til­lögu“
Jódís Skúla­dóttir

Fjöl­breyti­legar afleið­ingar eru af því að hver sem er getur stofnað áfanga­heim­ili og að ekk­ert eft­ir­lit sé síðan með rekstr­inum. 

Við erum að sjá, eins og þú nefnir, það er afskap­lega slæmur aðbún­aður, fólk upp­lifir jafn­vel ekki öryggi og við höfum séð, og einmitt hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum, áfanga­heim­ili þar sem fólk er hrein­lega að deyja, fleiri en einn og fleiri en tveir. Er þetta ásætt­an­leg staða?

„Nei, staðan er ekki ásætt­an­leg og það er nú þess vegna sem ég legg fram þessa þings­á­lykt­un­ar­til­lögu. En ég vil nú halda því til haga að það er mjög mis­jafn­lega haldið um hnút­ana og það eru tekin áfanga­heim­ili þar sem er eft­ir­lit og þar sem er staðið fram­úr­skar­andi vel að öllum málum. En það verður auð­vitað að vera ljóst að allir spili eftir sömu reglu og það sé hvergi rekið nokk­urt úrræði þar sem að lífi og heilsu fólks er ógnað af bara van­rækslu og eft­ir­lits­leysi,“ segir Jódís. 

Grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni lýkur á orð­unum: „Þetta er réttar­ör­ygg­is­mál fyrir ein­stak­linga sem nýta slík úrræði. Á meðan ekki er að finna í íslenskum lögum ákvæði sem varða með beinum hætti starf­semi, leyf­is­skyldu eða eft­ir­lit með áfanga­heim­ilum er unnt að reka ýmsa starf­semi undir heit­inu án sér­staks eft­ir­lits eða leyfis.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brostnar vonir á Betra lífi

FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Þær ljós­myndir sem birt­ust með grein­inni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður“

„Ráðherra telur afar mik­il­vægt að fólk búi við við­un­andi hús­næð­is­að­stæður. Þær ljós­myndir sem birt­ust með grein­inni sýndu því miður ekki slíkar aðstæður,“ segir í svari frá félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu þar sem óskað var eftir við­brögðum ráð­herra við hvernig aðbún­aður fólks sem bjó á áfanga­heim­ilum Betra lífs hefur verið, í kjöl­far umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar. Vinna stendur yfir í ráðu­neyt­inu við að kort­leggja hvaða vel­ferðar- og félags­leg þjón­usta ætti að vera háð rekstr­ar­leyfi og eft­ir­liti.
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Lög­fræð­ingar borg­ar­innar skoða styrki til Betra lífs

Lög­fræð­ingar vel­ferð­ar­sviðs eru að skoða styrki sem Reykja­vík­ur­borg veitti áfanga­heim­il­inu Betra líf á árunum 2020-2023. Þetta kemur til eftir að Heim­ildin fjall­aði um að rangar upp­lýs­ingar hefðu verið í styrk­um­sóknum. Í fyr­ir­spurn vegna máls­ins er meðal ann­ars spurt hvort litið sé á þetta sem til­raun til fjársvika en engin svör fást að svo stöddu.
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábend­ingum um „ógeðs­legar“ aðstæður

Árni Dav­íðs­son, deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigð­is­eft­ir­liti Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness, segir kallað verði eftir breyt­ingu á lögum til að bæta áfanga­heim­ilum á lista yfir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. Auk þess mun eft­ir­litið kalla eftir skýr­ari leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er varðar aðkomu eft­ir­lits­ins að íbúð­ar­hús­næði.

8 mín. lestur

FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Bæj­ar­full­trúi í Kópavogi telur áfanga­heim­ili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir kallar eftir heild­stæðri stefnu­mótun þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra í Kópavogi. Hún segir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hafa neitað að fjár­magna mála­flokk­inn í fjár­hags­á­ætlun. Ekkert eft­ir­lit er með rekstri svo­nefndra áfanga­heim­ilia og bendir Sig­ur­björg Erla á að þau falli á milli kerfa þar sem áfanga­heim­ilin teljst hvorki til heil­brigðisúr­ræða né gisti­þjón­ustu, þrátt fyrir að eiga að vera ein­hvers­konar blanda af hvoru tveggja.
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Hann sagði við mig að ef mér mis­lík­aði þetta gæti ég bara flutt út“

Sylwia Burzykowska leigði 12 fer­metra her­bergi á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut á 140 þús­und krónur á mán­uði sem hún þurfti að greiða í reiðufé. Hún skrif­aði undir ótíma­bund­inn leigu­samn­ing en hafði aðeins búið þar í þrjá mán­uði þegar húsið var rifið í byrjun mán­að­ar­ins. Sylwia býr nú í tjaldi.

10 mín. lestur

RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

„Þetta er brot sem ég hef á minni fer­il­skrá, ég get ekk­ert gert í því“

Baldur Sig­urð­ar­son hefur búið á þremur áfanga­heim­ilum Betra lífs. Hann segir það hafa verið „ósann­gjarnt“ þegar hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot. Baldur játar fús­lega að selja ávana­bind­andi lyf, seg­ist gera það til að geta séð fyrir börn­unum sínum. Hann þver­tekur hins vegar fyrir að hafa mis­notað sér neyð kvenna sem eru langt leiddir fíklar, og slíkar ásak­anir séu „kjaftæði“.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár