Skýrsla um stöðu drengja í menntakerfinu umdeild á meðal skólafólks

Tryggvi Hjaltason fékk 17 milljónir fyrir gerð skýrslu um stöðu drengja í skóla­kerfinu. Skýrslan hefur verið umdeild á meðal skóla­fólks, sem gagnrýnir aðferða­fræðina, val á viðmælendum, samanburð við önnur gögn og túlkun á niður­stöðum. Sjálfur segir höfundurinn að skýrslan sé hvorki upphaf né endir á umræðunni.

Sitt sýnist hverjum
Sitt sýn­ist hverjum Margir hafa lofað skýrslu Tryggva fyrir að gera yfir­grips­miklu efni skýr skil. Aðrir segja hins vegar að skýrslan sé á köflum vill­andi og nálgun hennar ein­faldi um of flókin vanda sem steðjar að mennta­kerf­inu. Mynd: /Stjórnarráð Íslands

Mikil umræða hefur átt sér stað um skýrslu sem fjallar um stöðu drengja í mennta­kerfinu og þær niður­stöður sem þar voru settar fram. 

Kynning á niður­stöðum úttektarinnar fór fram þann 6. júní síðastliðinn í fundarsal mennta- og barnamála­ráðuneytisins. Þótti mörgum vel hafa tekist til við að leggja heildrænt mat á hvernig komið væri fyrir drengjum í íslenska skóla­kerfinu og lofuðu höfund fyrir að hafa miðlað afrakstri umfangs­mikillar greiningar­vinnu með skýrum og skilmerki­legum hætti.  

Ráðherrarnir tveir, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamála­ráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, sögðu skýrsluna sýna fram á að vandinn sem stæði að drengjum í skóla­kerfinu væri skýr og áríðandi, og að stjórn­völd þyrftu að grípa til aðgerða til að takast á við ört versnandi stöðu. 

Viðbrögðin hafa þó ekki aðeins verið jákvæð. Ýmsir hafa gagnrýnt úttektina, bæði á umræðu­þráðum á samfélags­miðlum og skoðana­pistlum í fjöl­miðlum. Nær sú gagnrýni til …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Egill Másson skrifaði
    Góð umfjöllun. Tryggvi er að lyfta Grettistaki með þessari rannsókn. Það væri óskandi að þessi umræða kæmi frá kennslufræðingum en því miður er það ekki raunin.
    -1
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Hvernig dettur ráðherrum í hug að borga háar upphæðir fyrir skýrslur um menntamál sem ekki uppfylla akademísk skilyrði um rannsóknir og greiningu?
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár