Rannsókn lögreglu á banaslysi við Reykjanesvirkjun til skoðunar hjá ríkissaksóknara

Rík­is­sak­sókn­ari skoðar nú rann­sókn lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á banaslysi við Reykja­nes­virkjun sem Vinnu­eft­ir­litið telur vera „á mörk­unum að vera gáleys­is­dráp“.

Rannsókn lögreglu á banaslysi við Reykjanesvirkjun til skoðunar hjá ríkissaksóknara
Banaslys við Reykja­nes­virkjun Adam Osowski var 43 ára gam­all þegar hann lést í hörmu­legu vinnu­slysi í svefn­skála á virkj­un­ar­svæði Reykja­nes­virkj­unar. Adam lést af völdum gaseitr­unar vegna brenni­steins­vetnis frá bor­holu. Svipað atvik kom upp fjórum árum áður en ekk­ert var gert til að laga vanda­málið.

Rúmum sjö árum eftir banaslys við Reykja­nes­virkjun hefur Embætti rík­is­sak­sókn­ara ákveðið að rann­saka hvort rann­sókn lög­reglu á slys­inu hafi verið ófull­nægj­andi. Heim­ildin greindi nýlega frá áður óbirtum nið­ur­stöðum í rann­sókn Vinnu­eft­ir­lits­ins sem vörp­uðu ljósi á alvar­legt gáleysi í verk­lagi. 

RÚV greinir frá því að rík­is­sak­sókn­ari hafi tekið rann­sókn lög­reglu til skoð­unar. Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu hefur sömu­leiðis kallað eftir skýrslu Vinnu­eft­ir­lits­ins í þeim til­gangi að meta hvort þörf sé á að skoða rann­sókn lög­reglu á slys­inu. 

Slysið átti sér stað í svefn­skála á virkj­un­ar­svæði Reykja­nes­virkj­unar í byrjun febr­úar 2017. Adam Osowski, lést af völdum gaseitr­unar vegna brenni­steins­vetnis frá bor­holu Reykja­nes­virkj­unar. Her­berg­is­fé­lagi hans var einnig hætt kom­inn. Gasið hafði kom­ist upp í gegnum neyslu­vatns­lagnir svæð­is­ins vegna yfir­þrýst­ings, inn í svefn­skál­ann og eitrað fyrir mönn­unum. HS Orka hafði nýtt neyslu­vatnið til kæl­ingar bor­hol­unnar. 

Svipað atvik við sömu borholu árið 2013

Í áður óbirtum nið­ur­stöðum rann­sóknar Vinnu­eft­ir­lits­ins á slys­inu, sem Heim­ildin greindi frá í byrjun júní, kemur fram að svipað atvik hafði átt sér stað með sömu bor­holu árið 2013 og var það form­lega skráð niður í dag­bók fyr­ir­tæk­is­ins og kallað eftir betri umgengni um bor­hol­una. HS Orka vissi því um vanda­málið, gerði ekki nauð­syn­legar var­úðar- og örygg­is­ráð­staf­anir og Adam lét lífið fjórum árum síðar. 

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sá ekki ástæðu til að rann­saka mögu­lega ábyrgð HS Orku á van­rækslu vegna þessa, heldur var málið látið niður falla. Full­trúar HS Orku segja trygg­inga­fé­lag sitt hafa gert sam­komu­lag um bætur við aðstand­endur Adams, en HS Orka sætti ann­ars engri form­legri ábyrgð. Umsögn Vinnu­eft­ir­lits­ins lýsir svar­leysi frá lög­reglu þegar beðið var um skýrslu­tökur af máls­að­ilum og svör við spurn­ingum. Þá er umsögnin afger­andi í nið­ur­stöðum sínum um ófull­nægj­andi verk­lag HS Orku. „Ég var mjög hissa á sínum tíma að það skyldi ekki ein­hver verða ákærður fyrir þetta,“ segir Jóhannes Helgason, einn rann­sak­enda Vinnu­eft­ir­lits­ins við Heim­ild­ina.

Af lýs­ingum rann­sak­enda Vinnu­eft­ir­lits­ins voru vist­ar­verur svefn­skál­ans, sem Adam bjó í ára­langt, ekki við­un­andi sem heim­ili til langs tíma. Jóhannes segir það hafa verið sitt og þeirra mat á sínum tíma að „þetta væri alveg á mörk­unum að vera gáleys­is­dráp“, rann­sak­endur hafi búist við því að „ein­hver fengi gáleys­is­dóm á sig eða yrði lát­inn sæta ein­hverri ábyrgð“. Það hafi und­rað hann mjög að málið skyldi ekki hafa verið rann­sakað í raun sem slíkt, „okkur fannst það skrítið, ein­hver ætti að fá alla­vega eitt­hvert prik þarna“. Jóhannes segir jafn­framt að úrbætur HS Orku sem hafi fylgt í kjöl­far slyss­ins hafi verið til­tölu­lega ein­faldar og hefði mátt gera strax árið 2013. „Það er til­tölu­lega auð­velt að setja vatns­lás þarna inn á milli.“

Í svari HS Orku við spurn­ingum Heim­ild­ar­innar kemur fram að fyr­ir­tækið hafi komið fyrir kerum á milli vatns­leiðslna og röra sem leiða úr bor­holum sínum í dag. Kerið sé áþekkt vatns­lás á þann hátt að það stöðvar bak­flæði, en sé ólíkt hvað það varðar að hefð­bund­inn vatns­lás myndi ekki stöðva gas. Kerið er þannig gert að í því er kalt vatn sem opið er fyrir and­rúms­loft­inu þannig að gas gufar upp úr því fyrst áður en það kemst í neyslu­vatns­lagn­irnar. Það sé metn­aður HS Orku að „vinna ávallt eftir bestu mögu­legu örygg­is­við­miðum sem þekkj­ast“.

Engin svör frá lögreglunni á Suðurnesjum

Ekki liggur fyri hvers vegna rann­sókn lög­reglu var hætt og engin ákæra gefin út. Heim­ildin sendi ítar­legar fyr­ir­spurnir á lög­regl­una á Suð­ur­nesjum um málið og rann­sókn þess. Nú, tæpum tveimur mán­uðum síðar og ítrek­aðar ítrek­anir hafa engin svör borist enn frá emb­ætt­inu.

Engin tíma­mörk eru í lögum á eft­ir­liti rík­is­sak­sókn­ara með rann­sókn saka­mála og því er ekk­ert sem aftrar emb­ætt­inu að hefja rann­sókn á mál­inu nú.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár