„Áhyggjuefni hvað langtímaveikindi innan blaðamannastéttarinnar hafa aukist mikið“

Til þess að rétta af bága fjár­hags­stöðu Styrkt­ar­sjóðs blaða­manna hefur Blaða­manna­fé­lagið ákveðið að breyta úthlut­un­ar­reglum sjóðs­ins. Halla­rekst­ur­inn er rak­inn til fjölg­unar umsókna um sjúkra­daga­pen­inga. Í til­kynn­ingu segir að félagið hafi miklar áhyggjur af auknum lang­tíma­veik­indum meðal blaða­manna sem rekja megi til óvið­un­andi starfs­að­stæðna.

„Áhyggjuefni hvað langtímaveikindi innan blaðamannastéttarinnar hafa aukist mikið“
Halla­rekstur á Styrkt­ar­sjóði Blaða­manna­fé­lags Íslands Í til­kynn­ingu félags­ins segir að sjóð­ur­inn hafi verið rek­inn í halla und­an­farin tíu ár. Mynd: Golli

Styrkt­ar­sjóður félags­ins hefur verið rek­inn með halla „nær sleitu­laust frá árinu 2014“.  Þetta kemur fram ífrétta­til­kynn­ingu sem Blaða­manna­fé­lag Íslands sendi frá sér á mánu­dag.

Til þess að rétta úr kútnum hefur félagið ákveðið að hverfa frá fyrra fyr­ir­komu­lagi sem mið­aði við að tryggja sam­an­lagðan rétt félags­manna til launa í 12 mán­uði. Þess í stað kveða nýjar reglur á um að blaða­mönnum sé tryggður réttur til launa úr styrkt­ar­sjóði í þrjá mán­uði sem bæt­ist við kjara­samn­ings­bundin rétt­indi.   

„Þessi breyt­ing felur í sér að blaða­menn með yfir 10 ára starfs­reynslu eiga eftir sem áður rétt á launum í veik­indum í 12 mán­uði en fyrir félags­fólk með skemmri starfs­reynslu verður réttur til launa í veik­indum 7,5 til 9 mán­uðir, sem er sam­bæri­legt við önnur stétt­ar­fé­lög sem BÍ hefur borið kjör sín saman við,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Óviðunandi starfsaðstæður og mikið álag 

Í til­kynn­ingu félags­ins er tekið fram að Blaða­manna­fé­lag Íslands hafi samið um rýmri veik­inda­rétt­indi fyrir sitt félags­fólks en almennt gengur og ger­ist á vinnu­mark­aði. Atvinnu­rek­endur greiða til að mynda full laun blaða­manna í veik­inda­leyfi í lengri tíma en þekk­ist hjá mörgum öðrum stéttum. 

Þá er einnig tekið fram að önnur stétt­ar­fé­lög séu að ganga í gegnum sam­bæri­lega þróun, þar sem úthlut­un­ar­reglum styrktar- og sjúkra­sjóðum hefur verið breytt til þess að bregð­ast við fjölgun umsókna um sjúkra­dag­pen­inga. 

Þrátt fyrir það lýsir Blaða­manna­fé­lagið áhyggjum yfir auknum lang­tíma­veik­indum innan stétt­ar­innar sem bendir til alvar­legs vanda innan grein­ar­innar sem fari versn­andi. Félagið leggur áherslu á að bregð­ast þurfi við með aðgerðum til að snúa við þeirri ískyggi­legu þróun sem hefur átt sér stað. 

„Engu að síður er það áhyggju­efni hvað lang­tíma­veik­indi innan blaða­manna­stétt­ar­innar hafa auk­ist mikið.Það er löngu vitað að starfs­að­stæður blaða­manna eru óvið­un­andi, álag er of mikið, tæp­lega helm­ingi blaða­manna á Íslandi hefur verið ógnað eða hótað og laun eru ekki í sam­ræmi við menntun og ábyrgð.“

Aðgerð­irnar sem Blaða­manna­fé­lagið hyggst grípa til eru, meðal ann­ars, að hrinda af stað sér­stakri fræðslu- og for­varn­ar­á­ætlun sem félags­fólk sem glímir við lang­tíma­veik­indi getur leitað í.

Þar að auki seg­ist félagið muni leita leiða til að bæta starfs­að­stæður og líðan blaða­manna á vinnu­staðnum í sam­starfi við atvinnu­rek­endur. Þá mun félagið einnig leggja áherslu á skerpa fræðslu um rétt­indi félags­fólks.

Loks er tekið fram að BÍ muni eftir fremsta megni reyna að færa rétt­indi félags­fólks í betra horf þegar Styrkt­ar­sjóður félags­ins stendur betur fjár­hags­lega.   

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    eiturskotin bíta . . .
    0
  • AÓ
    Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Eg fæ alltaf við og við athugasemd "þú ert ekki innskráð..." Ég nenni ekki að þurfa að skrá mig inn með lykilorði í hvert sinnn sem ég les grein í tölvunni. Ég er líka skráð sem kaupandi að blaðinu , en nenni ekki alltaf að lesa það svo ég ætla að hætta því. Aðeins ef ég þarf ekki alltaf að innskrá mig með passorði ætla ég að vera með vefáskrift framvegis. Anna Ólafsd
    0
    • SV
      Salvör Valgeirsdóttir skrifaði
      Þegar þú skráir þig inn er möguleiki að haka við ,,muna mig". Þá ættir þú að haldast innskráð. Að því gefnu að þú sért að skoða á sama vafra hvert sinn.

      T.d. þegar þú smellir á hlekk frá facebook ertu ekki innskráð því þá ertu að skoða ,,gegnum Facebook".

      Vonandi hjálpar þetta.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár