Tvær konur hnífjafnar í einum mest spennandi kosningum lýðveldissögunnar

Tvær konur hnífjafnar í einum mest spennandi kosningum lýðveldissögunnar

Loka­kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar sýnir að það eru yfir­gnæf­andi líkur á því að annað hvort Halla Tóm­as­dóttir eða Katrín Jak­obs­dóttir verði næsti for­seti Íslands. Hálf milljón sýnd­ar­kosn­ingar sýna að vart er hægt að greina mun á líkum þeirra á sigri. Leita verður aftur til árs­ins 1980 til að finna jafn tví­sýnar kosn­ingar.

Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, mælist með mest fylgi í síð­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar. Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, er hins vegar mjög skammt undan. Katrín mælist með 24,3 pró­sent fylgi en Halla er með 23,2 pró­sent. Á þeim er ekki mark­tækur munur og því er staðan sú á kjör­dag að tveir fram­bjóð­endur eru með nán­ast sama stuðn­ing þjóð­ar­innar þegar hún gengur til kosn­inga. 

Líkur Katrínar á sigri hafa dalað frá því í byrjun viku og mæl­ast nú 40 pró­sent. Að sama skapi hafa líkur Höllu Tóm­as­dóttur auk­ist hratt og mæl­ast nú 34 pró­sent.

Aðrir fram­bjóð­endur eiga hverf­andi mögu­leika á því að sigra en sú sem kemst næst þeim tveimur sem leiða er Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri með 16 pró­sent líkur. Hún nær þó ekki að kljúfa 20 pró­senta-múr­inn í fylgi í þess­ari síð­ustu kosn­inga­spá, sem byggir á þeim skoð­ana­könn­unum sem gerðar voru á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar.

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, á ein­ungis sjö pró­sent líkur á því að sigra en fylgi hans er komið niður í 15 pró­sent, sem er það minnsta sem hann hefur mælst með frá því að skoð­ana­kann­anir fóru að birt­ast.

Fylgi Jóns Gnarr, leik­ara og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra í Reykja­vík, er komið niður fyrir tíu pró­sent og aðrir fram­bjóð­endur, alls sjö tals­ins, eru með enn minna fylgi. 

Lokamat tekur inn söguleg frávik

Kosn­inga­spáin er unnin af dr. Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi. Nú þegar allar skoð­ana­kann­anir sem gerðar verða í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í dag liggja fyrir þá reikn­aði hann líka út loka­mat á fylgi fram­bjóð­anda þar sem það er fram­reiknað út frá þeirri fylg­is­þróun sem átti sér stað síð­ustu vik­una fyrir kosn­ingar. Út frá því lokamati, og hversu mikið frá­vik hefur verið á síð­ustu skoð­ana­könnun fyrir kosn­ingar í sögu­legum gögnum, reikn­aði líkan Baldurs líka út líkur á sigri fram­bjóð­anda. Líkurnar eru fengnar með því að keyra 500 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar til þess að reikna út hversu lík­legt sé að hver og einn fram­bjóð­andi sigri.

Lokamat, sem reiknar inn áhrif fylg­is­þró­unar í síð­ustu vik­unni, sýnir að Halla Tóm­as­dóttir mælist með mest fylgi, eða 24,8 pró­sent. Katrín er þó á nán­ast sama stað með 24,6 pró­sent. Á þeim er nær eng­inn munur og því ljóst að einar mest spenn­andi kosn­ingar lýð­veld­is­sög­unnar eru að fara fram í kvöld. Lokamatið sýnir Höllu Hrund með 19,5 pró­sent fylgi og Baldur með 14,4 pró­sent. Aðrir fram­bjóð­endur munu ekki ná tveggja stafa tölu. 

Líkurnar á sigri, byggðar á lokamat­inu og sögu­legu frá­viki í síð­ustu könn­unum fyrir kosn­ingar, eru því þannig að Halla á 41 pró­sent líkur á því að fá lykla­völdin að Bessa­stöðum og Katrín 40 pró­sent. Þótt nær eng­inn munur sé á þeim tveim þá er þetta í fyrsta skipti sem Halla mælist með meiri líkur í útreikn­ingum kosn­inga­spár­innar. Líkur Höllu hafa auk­ist skarpt síð­ustu daga en líkur Katrínar dreg­ist saman. 

Sá fram­bjóð­andi sem kemur næst þeim tveim í líkum á því að vinna er Halla Hrund, en líkur hennar eru sem stendur ein­ungis 14 pró­sent, og því ansi fjarri þeim tveimur sem lík­leg­astar eru til að sigra. Það sem liggur þó fyrir er að allar líkur eru á því að Ísland sé að fara að fá konu sem for­seta í annað sinn í lýð­veld­is­sög­unni og í fyrsta sinn síðan að Vigdís Finn­boga­dóttir hætti árið 1996, eða í 28 ár. Þær þrjár sem skipa sér í efstu sætin eru sam­an­lagt með 95 pró­sent líkur á sigri. 

Vigdís sigr­aði með lægsta hlut­falli atkvæða sem for­seti hefur nokkru sinni verið kos­inn með, eða 33,8 pró­sent. Hún fékk 1.911 atkvæði umfram það sem Guð­laugur Þor­valds­son, þáver­andi rík­is­sátt­ar­semj­ari, fékk en hann hlaut 32,3 pró­sent atkvæða.

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar er, líkt og áður sagði, unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og gerð það líka í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig. 

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjan Jons skrifaði
    Hvers vegna sitjum við uppi með Amerískan forstjóra sem forseta?

    Vegna þess að Mogginn, Rúv og Gllup/Aston JL fældu fólk frá Höllu Hrund Logadóttur til að reyna að þvinga fv. forréttindaráðherra ofan í okkur "óvitana".

    Fyrir svona afrek fær Moggi opinbera styrki
    -1
  • Kristjan Jons skrifaði
    Hér fellur sjálfur Þórður Snær í gryfju auglýsingastofunnar Gallup. Skoðanakönnun þeirra nær 7 daga aftur í tímann, og þeir leyna því hver er með mestu fylgisaukninguna síðustu 4 daga. Siðrof er framundan.
    -1
  • Guðmundur Vignir Óskarsson skrifaði
    Mín sterka tilfinning er að straumurinn síðustu daga liggi til Höllu Hrundar sem stóð sig frábærlega og best í þeim málum sem mestu máli skipta fyrir þjóðina 👍🇮🇸
    0
    • Kristjan Jons skrifaði
      Já, og það eru til tölur sem segja það sama, en þeim er leynt til að tvístra fylginu.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár