Segir banaslys við Reykjanesvirkjun „alveg á mörkunum að vera gáleysisdráp“

Slys varð árið 2017 í Reykja­nes­virkjun. Einn maður lést og annar var hætt kom­inn af völdum eitr­unar vegna brenni­steins­vetnis. Gasið komst í gegnum neyslu­vatns­lögn sem HS Orka hafði nýtt til að kæla bor­holu. Áður óbirtar nið­ur­stöður í rann­sókn Vinnu­eft­ir­lits­ins varpa ljósi á alvar­legt gáleysi í verk­lagi. Svipað atvik átti sér stað árið 2013, gas komst upp úr sömu bor­holu og inn í neyslu­vatns­kerfið, en HS Orka lag­aði ekki vanda­málið.

Segir banaslys við Reykjanesvirkjun „alveg á mörkunum að vera gáleysisdráp“
Adam Osowski og Reykja­nes­virkjun Adam Osowski bjó á virkj­un­ar­svæði Reykja­nes­virkj­unar í svefn­skála í 6 ár áður en hann lést.

Árið 2017 varð hörmu­legt vinnu­slys manni að bana í svefn­skála á virkj­un­ar­svæði Reykja­nes­virkj­unar. Virkj­unin var og er í eigu HS Orku. Hinn látni, Adam Osowski, lést af völdum gaseitr­unar vegna brenni­steins­vetnis frá bor­holu Reykja­nes­virkj­unar. Her­berg­is­fé­lagi hans var einnig hætt kom­inn. Gasið hafði kom­ist upp í gegnum neyslu­vatns­lagnir svæð­is­ins vegna yfir­þrýst­ings, inn í svefn­skál­ann og eitrað fyrir mönn­unum. HS Orka hafði nýtt neyslu­vatnið til kæl­ingar bor­hol­unnar. Heim­ildin hefur fengið í hend­urnar umsögn Vinnu­eft­ir­lits­ins vegna slyss­ins, en inni­hald hennar birt­ist fyrst núna í fjöl­miðlum.

Í umsögn­inni kemur fram að svipað atvik hafði átt sér stað með sömu bor­holu árið 2013 og var það form­lega skráð niður í dag­bók fyr­ir­tæk­is­ins og kallað eftir betri umgengni um bor­hol­una. HS Orka vissi því um vanda­málið, gerði ekki nauð­syn­legar var­úðar- og örygg­is­ráð­staf­anir og Adam lét lífið fjórum árum síðar. Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sá ekki ástæðu til að rann­saka mögu­lega ábyrgð HS Orku á van­rækslu vegna þessa, …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Suðurnesjalöggan er fræg fyrir spillingu og lélega vinnuhætti. Óskiljanlegt að það sé ekkert innra eftirlit og tiltekt þarna.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár