„Maður á ekki að berja neina hesta, ekki dauða heldur“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir í við­tali við Heim­ild­ina að það sé ekki rétt að líkja vinn­unni við að tryggja áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf við að berja dauðan hest. Hann segir Fram­sókn­ar­flokk­inn vera reiðu­bú­inn til að halda sam­starf­inu áfram en gat ekki tjáð sig nánar um hvaða breyt­ingar verði gerðar á skipan rík­is­stjórn­ar­innar.

Sigurður Ingi Jóhannsson segir að Framsókn muni styðja áframhaldandi stjórnsamstarf en gat ekki tjáð sig nánar um hvernig það samstarf muni líta út.

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra seg­ist ekki geta tjáð sig mikið að svo stöddu um hvernig áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf muni líta út. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar tók for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins tali skömmu eftir að fundi þing­flokks­for­manna á Alþingi lauk. 

„Við vorum bara að ræða áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf sem hefur auð­vitað verið til umfjöll­unar milli for­manna flokk­anna núna um helg­ina,“ sagði Sigurður Ingi spurður um hvað var rætt á fund­inum.

Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hefur und­an­farið gengið brös­ug­lega og hefur ýmsum þótt þreyta vera komin í sam­starf stjórn­ar­flokk­anna. Spurður hvort líkja mætti til­raunum stjórn­ar­flokk­anna til þess að end­ur­skipu­leggja stjórn­ar­sam­starfið við það að berja dauðan hest segir Sigurður Ingi svo ekki vera.

„Maður á ekki að berja neina hesta, ekki dauða heldur. En þetta er engan veg­inn þannig. Þetta er fyrst og fremst, við höfum notað síð­ustu daga til þess að fara yfir málin. Þetta er svona ákveðin áskorun sem ger­ist óvænt þegar for­sæt­is­ráð­herra hverfur af braut og eðli­legt að við tökum nokkra daga í það.“    

Framsókn styður áframhaldandi samstarf 

Þá seg­ist Sigurður Ingi vænta þess að nán­ari skýr­inga á sam­komu­lagi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna megi vænta síðar í dag. 

„Við munum skýra nánar frá öllum hlutum er varða þessa ákvörðun okkar, ann­ars vegar þing­flokks­ins og þing­flokka ann­arra stjórn­ar­flokka seinna í dag af því að málið er enn til umfjöll­unar í einum þing­flokknum, eða í einum flokknum.“

Þar á Sigurður eflaust við Vinstri græn en þing­flokks­fundur hófst hjá þeim klukkan ell­efu og stóð enn yfir þegar við­talið var tekið um hádegið.

„[M]ér finnst óeðli­legt að ég sé að upp­lýsa meira heldur en bara við í Framsókn erum til­búin til þess að halda þessu sam­starfi áfram.“

Spurður hvort hann muni taka við fjár­mála­ráðu­neyt­inu seg­ist Sigurður ekki geta tjáð sig um nokkurn skap­aðan hlut fyrr en seinna í dag. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár