SOS Barnaþorpin sjá ekki ástæðu til að slíta samstarfi við Heru

SOS Barna­þorp hafa verið krafin um að slíta sam­starfi við Heru Björk, flytj­anda fram­lags Íslands í Eurovi­son í ár. Samtökin sjá ekki ástæðu til að slíta sam­starf­inu, þrátt fyrir að Hera hafi farið fögrum orðum um fram­lag Ísraels.

Hera Björk
Hera Björk Hera hefur verið vel­gjörð­ar­sendi­herra SOS Barna­þorp­anna í 15 ár. Mynd: RÚV

SOS Barna­þorpin á Íslandi hafa fengið skila­boð frá fólki sem lýsir van­þóknun sinni á sam­starfi sam­tak­anna við Heru Björk Þór­halls­dóttur oog kraf­ist þess að þau slíti sam­starfi við hana. 

Hera sigr­aði Söngvakeppni sjón­varps­ins í mars og verður full­trúi Íslands í Eurovision sem fram fer í Malmö. Ísrael verður einnig á meðal þátt­töku­þjóða. 

Hera hef­ur ver­ið vel­gjörð­ar­sendi­herra SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi frá ár­inu 2009. Í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum kemur fram að þeir sem hafa lýst van­þóknun sinni á sam­starfi SOS Barna­þorp­anna og Heru geri það margir „und­ir því yf­ir­skyni að þátt­taka Heru í Eurovisi­on jafn­gildi því að hún taki af­stöðu gegn börn­um í neyð í Palest­ínu. Við vit­um að það ger­ir Hera Björk ekki og sam­tök­in sjá því ekki ástæðu til að skipta sér af lög­mætri þátt­töku henn­ar í Eurovisi­on eða slíta sam­starf­inu við hana“. 

Í yfir­lýs­ingu SOS Barna­þorp­anna segir að sam­tökin deili reiði í garð þeirra sem murka lífið úr sak­lausum borg­urum. „All­ir sem standa utan við stríð­ið á Gaza upp­lifa van­mátt sinn gagn­vart því og það ger­um við líka. Við skilj­um vel þau sjón­ar­mið fólks sem vill að full­trú­ar þjóð­ar­inn­ar á op­in­ber­um vett­vangi noti rödd sína til að mót­mæla. En að sama skapi biðj­um við um skiln­ing á okk­ar sjón­ar­mið­um sem eru þau að Hera hef­ur ekki á nokk­urn hátt gerst brot­leg gegn gild­um SOS Barna­þorp­anna. Það yrðu frek­ar brot gegn þeim gild­um ef sam­tök­in ætl­uðu að þrýsta á vel­gjörða­mann­eskju sama­tak­anna og kepp­anda í söngv­akeppni til að beita sér póli­tískt á þann hátt sem kröf­ur eru uppi um.“

Þegar Hera sigr­aði Söngvakeppni Sjón­varps­ins sagð­ist hún ætla að nýta Eurovision sem vett­vang til að eiga sam­tal. Það sagði hún einnig í við­tali í hlað­varp­inu  Building Bridges – A Eurovision Podcast For The Rest of Us í febr­úar. Ég trúi því að svið Eurovision sé stór­kost­legur vett­vangur fyrir sam­tal,“ sagði hún. Í nýlegu við­tali ísra­elska Eurovision-mið­il­inn Euromix dásam­aði hún fram­lag Ísraels í Eurovision í ár. „Ég dýrka þetta lag. Mér finnst það töfr­andi og ég vona að öðrum finn­ist það líka.“

Lagið, Hurricane, er sungið af söng­kon­unni Golan, sem er af ísra­elskum og rúss­neskum ættum. Lagið hét upp­haf­lega October Rain og vís­aði þannig til árása Hamas í Ísrael í októ­ber. 

Orð Heru um ísra­elska fram­lagið hafa vakið athygli og í kjöl­farið sendi hún frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún vill bregð­ast við því að henni hafi verið „gerðar upp skoð­anir um ástandið í Palest­ínu“. 

„Mér finnst fram­koma Ísra­el við palest­ínsku þjóð­ina vera hræði­leg og til skamm­ar. Að börn þjá­ist finnst mér alltaf vera skelfi­legt og hvað þá þeg­ar heil þjóð þjá­ist eins og núna er stað­an. Ég hef ver­ið í Palest­ínu og hjálp­að til við að fjár­magna heim­ili fyr­ir mun­að­ar­laus börn þar, svo ég hef séð með eig­in aug­um hvernig er búið að fara með þetta fólk. Ég er á móti stríði. Ég kalla á eft­ir friði og er á móti því að fólk tali ekki sam­an og beiti of­beldi,“ segir Hera í yfir­lýs­ingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár