Send í megrunarklúbb 12 ára gömul
Fær suð fyrir eyrun þegar hún er spurð hvað hún sé þung Sólveig Sig­urð­ar­dóttir segir að hún hafi ekki jafnað sig á for­dómunum sem hún varð fyrir þegar hún var barn og ung­lingur. Hún hafi af þeim sökum alla tíð skamm­ast sín fyrir þyngd sína. Skömmin fylgi henni enn. Mynd: Golli

Send í megrunarklúbb 12 ára gömul

Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Samtaka fólks með offitu, segir að fólk með offitu verði fyrir stöð­ugu áreiti og for­dómum. Sjálf hafi hún þurft að þola for­dóma frá barns­aldri og í kjöl­farið þróað með sér átröskun. Hún var send í megr­un­ar­klúbb þar sem hún var vigtuð einu sinni í viku. Klappað var ef hún hafði lést, púað ef hún hafði þyngst.

Sólveig Sig­urð­ar­dóttir segir það sorg­lega stað­reynd að enn verði fólk með offitu fyrir for­dómum. Það eigi við um fólk á öllum aldri, líka börn sem verði reglu­lega fyrir áreiti og for­dómum vegna holda­fars síns. Þetta sé að ger­ast þrátt fyrir að fólk viti í dag hvaða áhrif for­dómar hafa á sál­ar­líf þeirra sem fyrir þeim verði. Sjálf hefur Sólveig þurft að þola for­dóma frá barns­aldri sem urðu til þess að hún veikt­ist af átröskun. Hún segir að ung­lings­árin hafi verið henni sér­stak­lega erfið.  

Var orðin veik af átröskun 11 ára

Sólveig seg­ist ekki muna eftir sér öðru­vísi en í glímu við aukakíló, orð sem hún hafi heyrt nær dag­lega allan upp­vöxt sinn. Slíkt móti fólk til fram­tíðar. „Ég er búin að lifa með offitu frá því ég var barn. Ég á að baki mikla áfalla­sögu og var farin að mis­nota mat á ung­lings­árum.“

„Nið­ur­stöð­urnar stað­festa tengsl milli áfalla í æsku …
Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það er ekki sama hvernig tekið er á átröskunum, ég tala nú ekki um þegar börn eiga í hlut.

    En, við verðum að geta tekið samtalið. Þetta byrjar heima að börn verða of þung. Þegar börn alast upp í fíkn, þá er þau í meiri áhættu en önnur börn að verða fíkninni að bráð og skiptir þá engu máli hver fíknin er. Séu börn allt og þung þegar þau eru komin í leikskóla, þá finnst mér að fagfólk þurfi að grípa inn í. Lífstílssjúkdómar eru á okkar ábyrgð. Börn fara nú yfirleitt ekki að drekka áfengi eða reykja fyrir fermingaraldurinn. Hvað með sælgætið? Hvað með sykruðu mjólkurvörurnar og kornmatinn? Krakkar vilja ekki grænmeti, því þeim finnst það vont. Afhverju finnst þeim það vont? Munið þið þegar verið var að setja snuðin (tútturnar) í sykurkarið til að fá börnin til að þegja augnablik. Það var alls ekki óalgengt að börn þurftu falskar tennur upp úr fermingu. Það tekur fimm ár að verða leikskólakennari, en það þarf ekki grunnskólapróf til að vera foreldri. Börnin eru á okkar ábyrgð og það er ekki fordómar að skikka foreldra til að sinna börnum sínum og innræta þeim almenna hollustu hætti. Hættið að láta sölumenn taka af ykkur völdin. Háin þrjú. Hollt, Hreyfing og Hvíld.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríðið um líkamann

Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
FréttirStríðið um líkamann

Millj­arðar kvenna sem passa ekki inn í útlits­boxið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki lengur í tísku og að Bridget Jones sé ekki lengur talin feit, eru útlits­kröfur til nútíma­kvenna enn óraun­hæfar, segir pró­fessor í félags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áður hafi verið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smánað út af útliti.“
,,Aðgerðin hafði aldrei verið framkvæmd“
ÚttektStríðið um líkamann

,,Aðgerðin hafði aldrei verið fram­kvæmd“

Kona sem taldi sig hafa geng­ist undir skurð­að­gerð vegna offitu á sjúkra­húsi erlendis fékk síðar stað­fest af lækni hér­lendis að aðgerðin hefði ekki verið fram­kvæmd. Læknir kon­unnar segir að maga­speglun hafi strax sýnt það. Lög­fræð­ingar sjúkra­húss­ins ytra segja þetta af og frá og hót­uðu kon­unni lög­sókn ef hún opin­ber­aði nafn lækn­is­ins eða sjúkra­húss­ins.
Ofuráhersla á að minnka feitt fólk en samt þyngjumst við
ViðtalStríðið um líkamann

Ofurá­hersla á að minnka feitt fólk en samt þyngj­umst við

Doktor í nær­ing­ar­fræði, aðjunkt í fag­inu og félags­ráð­gjafi segja ofurá­herslu á þyngd innan heil­brigð­is­kerf­is­ins geta leitt til átrask­ana, and­legrar van­líð­anar og vannær­ingar. Konurnar hafa áhyggjur af stökki í notkun lyfja við offitu sem hafi ekki verið rann­sökuð til langs tíma. Tugir skjól­stæð­inga dokt­ors­ins sem hætt hafa á lyfj­unum hafa þyngst hratt í kjöl­farið og upp­lifað stjórn­leysi í kringum mat.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár