Hótuðu að grípa til laga­legra aðgerða Í svar­bréfi lög­fræð­inga sjúkra­húss­ins segir að ef konan birti upp­lýs­ingar sem gætu varpað skugga á lækn­inn eða sjúkra­húsið neyð­ist þeir til að grípa til laga­legra aðgerða

,,Aðgerðin hafði aldrei verið framkvæmd“

Kona sem taldi sig hafa geng­ist undir skurð­að­gerð vegna offitu á sjúkra­húsi erlendis fékk síðar stað­fest af lækni hér­lendis að aðgerðin hefði ekki verið fram­kvæmd. Læknir kon­unnar segir að maga­speglun hafi strax sýnt það. Lög­fræð­ingar sjúkra­húss­ins ytra segja þetta af og frá og hót­uðu kon­unni lög­sókn ef hún opin­ber­aði nafn lækn­is­ins eða sjúkra­húss­ins.

„Fólk fer í efna­skipta­að­gerðir til dæmis í Tyrk­landi, Ung­verja­landi eða Póllandi. Það er ekki skráð sjálf­krafa hjá læknum eða yfir­völdum hér og því er ekk­ert eft­ir­lit hér eftir aðgerð­ina,“ segir Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Samtaka fólks með offitu, en hún er einnig for­seti Evr­ópu­sam­taka fólks með offitu og ein stofn­enda þeirra. 
Hún segir að skurð­að­gerðir vegna offitu séu aldrei hættu­lausar, þær geti verið flóknar og því gríð­ar­lega mik­il­vægt a
ð fylgst sé vel með sjúk­lingi eftir aðgerð. „Við hjá sam­tök­unum höfum heyrt í fólki og séð maga­spegl­anir eftir aðgerðir sem fram­kvæmdar voru á þessum stöðum og þær hafa sumar verið vafa­samar, svo ekki sé sterkara að orði kveðið.“

Spurð hvað hún eigi við segir Sólveig: „Við höfum séð sann­anir fyrir því, til að mynda eftir að maga­speglun var fram­kvæmd hér á Íslandi á mann­eskju sem fór í aðgerð í einu af þessum löndum, að þá kom í ljós að …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríðið um líkamann

Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
FréttirStríðið um líkamann

Millj­arðar kvenna sem passa ekki inn í útlits­boxið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki lengur í tísku og að Bridget Jones sé ekki lengur talin feit, eru útlits­kröfur til nútíma­kvenna enn óraun­hæfar, segir pró­fessor í félags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áður hafi verið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smánað út af útliti.“
Ofuráhersla á að minnka feitt fólk en samt þyngjumst við
ViðtalStríðið um líkamann

Ofurá­hersla á að minnka feitt fólk en samt þyngj­umst við

Doktor í nær­ing­ar­fræði, aðjunkt í fag­inu og félags­ráð­gjafi segja ofurá­herslu á þyngd innan heil­brigð­is­kerf­is­ins geta leitt til átrask­ana, and­legrar van­líð­anar og vannær­ingar. Konurnar hafa áhyggjur af stökki í notkun lyfja við offitu sem hafi ekki verið rann­sökuð til langs tíma. Tugir skjól­stæð­inga dokt­ors­ins sem hætt hafa á lyfj­unum hafa þyngst hratt í kjöl­farið og upp­lifað stjórn­leysi í kringum mat.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár