Ofuráhersla á að minnka feitt fólk en samt þyngjumst við

Ofuráhersla á að minnka feitt fólk en samt þyngjumst við

Doktor í nær­ing­ar­fræði, aðjunkt í fag­inu og félags­ráð­gjafi segja ofurá­herslu á þyngd innan heil­brigð­is­kerf­is­ins geta leitt til átrask­ana, and­legrar van­líð­anar og vannær­ingar. Konurnar hafa áhyggjur af stökki í notkun lyfja við offitu sem hafi ekki verið rann­sökuð til langs tíma. Tugir skjól­stæð­inga dokt­ors­ins sem hætt hafa á lyfj­unum hafa þyngst hratt í kjöl­farið og upp­lifað stjórn­leysi í kringum mat.

Karl­maður hrækti á eina þeirra í sundi, læknir reyndi að þröngva lyfjum við offitu upp á aðra þeirra, sú þriðja byrj­aði í megr­unum sex ára gömul eftir stríðni frá skóla­fé­lögum sínum. Allar hafa þær svelt lík­ama sinn á ein­hverjum tíma­punkti – ekki vegna þess að þær þyrftu að létt­ast af heilsu­fars­legum ástæðum heldur vegna for­dóma sem þær urðu fyrir á grund­velli holda­fars – for­dóma sem fengu þær til þess að reyna að minnka sjálfar sig.

Þær vita hvernig er að vera í stríði gegn lík­ama sínum og hugsa til þess mikla fjölda sem er í þeirri stöðu í dag. Þær hafa áhyggjur af því að það fjölgi í hópnum vegna þess sem þær sjá sem sjúk­dómsvæð­ingu holda­fars í íslensku heil­brigð­is­kerfi, sem birt­ist meðal ann­ars í auk­inni notkun lyfja við offitu – lyfja sem mælt er með til lífs­tíðar en hafa ekki farið í gegnum lang­tíma­rann­sóknir. 

Í dag er ein kvenn­anna, …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ETK
    Eysteinn T. Kristinsson skrifaði
    Kaloríur í dag eru einfaldlega mun ódýrari og aðgengilegri í dag enn þær voru bara fyrir ekker svo mörgum áratugum. Ég væri alveg sáttur við að það væri settur á sykur skattur, bara eins og í danmörku. Mars stykki þar eru, minnir mig, þrefallt dýrari og danir grennri fyrir vikið.
    Það gerist bara í hverri helgi hjá mér að ég geng framhjá nammi hillunni í bónus með út rétta hönd og sópa í kerruna hjá mér. Það er bara svo ódýrt að maður hikar ekki við það. Maður er svo í eilífu stríði við erkióvininn... viktina.
    0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Mikill sannleikur … Body Mass Index er frá 1850 😇 Hvenær verður gerð samanburðarrannsókn á heilsu fólks og borið saman hvort þyngra fólk sé í rauninni óheilbrigðara en þeir grönnu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríðið um líkamann

Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
FréttirStríðið um líkamann

Millj­arðar kvenna sem passa ekki inn í útlits­boxið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki lengur í tísku og að Bridget Jones sé ekki lengur talin feit, eru útlits­kröfur til nútíma­kvenna enn óraun­hæfar, segir pró­fessor í félags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áður hafi verið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smánað út af útliti.“
,,Aðgerðin hafði aldrei verið framkvæmd“
ÚttektStríðið um líkamann

,,Aðgerðin hafði aldrei verið fram­kvæmd“

Kona sem taldi sig hafa geng­ist undir skurð­að­gerð vegna offitu á sjúkra­húsi erlendis fékk síðar stað­fest af lækni hér­lendis að aðgerðin hefði ekki verið fram­kvæmd. Læknir kon­unnar segir að maga­speglun hafi strax sýnt það. Lög­fræð­ingar sjúkra­húss­ins ytra segja þetta af og frá og hót­uðu kon­unni lög­sókn ef hún opin­ber­aði nafn lækn­is­ins eða sjúkra­húss­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár