Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist

Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist

Laga­breyt­ing sem var fyrir einu og hálfu ári kölluð „aðför að neyt­endum“ var sam­þykkt á Alþingi í lok síð­ustu viku með atkvæðum minni­hluta þing­manna. Um er að ræða afnám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laumað inn í frum­varp á loka­metrum afgreiðslu þess með mik­illi aðkomu þeirra sem mest græða á henni.

Á fimmtu­dag í síð­ustu viku var frum­varp afgreitt á Alþingi sem hefur þær afleið­ingar að afurða­stöðvar í land­bún­aði mega nú stunda sam­ráð sem áður var ólög­mætt sam­kvæmt íslenskum lögum. Um er að ræða laga­breyt­ingu sem stjórn­endur afurða­stöðva sem fram­leiða lamba-, kjúklinga- og svína­kjöt hafa lengi stefnt að og til stóð að keyra í gegnum Alþingi fyrir nokkrum árum, en var þá stöðvað eftir harða and­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, Neyt­enda­sam­taka og ýmissa hag­að­ila í verslun og þjón­ustu. Í umsögnum um það var frum­varpið meðal ann­ars kallað „aðför að neyt­endum“. 

Það frum­varp sem var afgreitt nú átti ekki að inni­halda heim­ild fyrir kjöt­af­urða­stöðvar til að hafa með sér sam­ráð um verka­skipt­ingu, verð­lagn­ingu eða aðra þætti starf­sem­innar sem ólög­mætt er í öðrum atvinnu­greinum. Það átti heldur ekki að inni­halda heim­ild fyrir kjöt­af­urða­stöðvar til að sam­ein­ast án tak­mark­ana eða að veita þeim fullt sjálf­dæmi um verð­lagn­ingu til bænda, smá­sala eða neyt­enda. Þessum heim­ildum, sem í …

Kjósa
94
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ETK
    Eysteinn T. Kristinsson skrifaði
    Góð grein, mætti alveg fylgja þessu eftir og krefjast svara. Á ekki að leyfa einhverju sjálf-vígðum kóngum að eignast alla peninganna, plebburinn þarf að geta keypt sér ís allaveganna einu sinni í viku.
    1
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér finnst allt sem varðar þetta frumvarp sem er nú samþykkt sem lög kalli á forseta Íslands að neyta undirskrift uns lögmæti málsins hefur verið skýrt. Vafi á hvort lögin samrýmist EES samningum ætti að vera næg ástæða.
    3
  • SJ
    Sigríður Jónsdóttir skrifaði
    Hefur forseti Íslands staðfest þessi lög?
    1
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Guðni þú ert búinn að standa þig með prýði sem forseti. Gefðu okkur að skilnaði að leyfa okkur að kjósa um þetta mál.
    4
    • SJ
      Sigríður Jónsdóttir skrifaði
      Skora einnig á forsetann að vísa lögunum til þjóðaratkvæðis
      5
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þetta mál er með ólíkindum, svo vægt sé til orða tekið. Trúi ekki að þessi lög geti staðist.
    4
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Við hverju er að búast þegar þrír framsóknarflokkar eru saman í stjórn.
    6
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hreinasti viðbjóður og skelfing að lesa þetta. Og þessir sem að þessu standa
    sami viðbjóðurinn. Hvar er þessi ríkisstjórn? Hún virðist ekki hugsa mikið um almenning, nú sem endranær.
    9
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það verður ekki á þá logið 👿😈👿
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samkeppnisundanþága í Landbúnaði

Svör Íslands til ESA óljós - svöruðu með hlekk á lagasafn þingsins
FréttirSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Svör Íslands til ESA óljós - svör­uðu með hlekk á laga­safn þings­ins

Íslensk stjórn­völd svara því ekki með afger­andi hætti í svari til ESA hvort þau telji sam­keppn­isund­an­þágur sem alþingi sam­þykkti í vor, stand­ast EES-samn­ing­inn. Loðin og óskýr svör eru við flestum spurn­ingum ESA. Mat­væla­ráðu­neytið svar­aði spurn­ingum um harð­ort bréf sitt til Alþingis með því að senda ESA bréfið og hlekk á laga­safn þings­ins.
KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt
Skýring

KS kaupir Kjarna­fæði – Skag­firska efna­hags­svæðið orðið Norð­ur­land allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.
Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti
RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flytur inn hund­ruð tonna af kjöti

Risar á íslenskum kjöt­mark­aði, sem fengu í vor umdeildar und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum til þess að verj­ast sam­keppni að utan, verða á þessu ári umfangs­mestir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­nautar sjálfs sín. „Von­brigði,“ segir for­maður atvinnu­vega­nefndar. Umfangs­mikil heild­sala á hund­ruðum tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leik­tjald fyrir öfl­ug­asta hags­muna­aflið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár