Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
20 millj­arðar frá rík­inu í rekst­ur­inn Íslenska ríkið hefur greitt tæp­lega 20 millj­arða króna inn í rekstur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns frá árinu 2009. Stærstu eig­end­urnir eru Þórir Kjart­ans­son og Arnar Þórisson sem hafa tekið vel á þriðja millj­arð út úr fyr­ir­tæk­inu með því að lækka hlutafé þess. Halla Thorodd­sen er for­stjóri Sóltúns. Mynd: Samsett / Heimildin

Einka­rekna hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk tæp­lega 20 millj­arða króna greiðslur frá íslenska rík­inu á árunum 2009 til 2022. Um er að ræða greiðslu daggjalda til Sóltúns vegna sjúkra­tryggðra ein­stak­linga sem búið hafa á hjúkr­un­ar­heim­il­inu á umræddu tíma­bili. 

Greiðsl­urnar frá rík­inu eru langstærsti hluti tekna Sóltúns en íbúar hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins greiða einnig auka­lega til fyr­ir­tæk­is­ins í sumum til­fellum. Umræddar greiðslur til Sóltúns, eða móð­ur­fé­lags þess, Öldungs ehf., koma fram í rík­is­reikn­ingum áranna 2009 til 2022 og sendi heil­brigð­is­ráðu­neytið Heim­ild­inni upp­lýs­ingar um þær að beiðni blaðs­ins.

Um fjár­mögnun Sóltúns segir í árs­reikn­ingi félags­ins: „Öldungur hf. rekur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún sam­kvæmt þjón­ustu­samn­ingi við ríkið og byggir rekstur félags­ins á dag­gjöldum og öðrum fram­lögum frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands.“

„Ég er ekki til­bú­inn til þess að tjá mig um þetta að svo stöddu.“
Jóhann Óli Guð­munds­son,
stofn­andi Sóltúns um sölu hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins árið 2009

Kaupverðið hefur aldrei verið gefið upp

Stærstu hlut­hafar Sóltúns, þeir Þórir Kjart­ans­son og Arnar Þórisson, …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Fólkið sem eyðir atkvæði sínu á framsóknarflokkinn ?
    Veit þetta fólk að framsóknarflokknum er alveg sama um sjúklinga og gamalt fólk ?
    Eina sem framsóknarflokkurinn vill er að einkavinavæða allt heilbrigðiskerfið og búa til ,,aumingja kerfi" fyrir sjúkt og gamalt fólk á Íslandi ?
    Munið það í næstu kosningum að framsóknarflokkurinn er versti óvinur með sjálfstæðisflokknum í stjórn ?
    2
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Sorgarsaga Sóltúns, ein og sér, ætti að vera nóg tilefni til uppreisnar. Einkavæðing velferðarkerfa samfélagsins er glæpur. Viðurstyggilegur glæpur. Glæpamennirnir, innan sem utan stjórnkerfis, skáka í skjóli þess að almenningur sé of upptekinn af að hafa til hnífs og skeiðar, og/eða í símanum, til að draga þá til ábyrgðar. En það er blekking.
    6
  • BGH
    Bardur G Halldorsson skrifaði
    Allt í boði Bjarna og Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru eins og allir vita beztu vinir gamla fólksins og einkavinir smælingja!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.
Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á
Viðskipti

Lóð keypt af hjúkr­un­ar­heim­il­inu fyrir fimmt­ung af því sem hún seld­ist á

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún var notað til að veita dótt­ur­fé­lagi þess selj­enda­lán árið 2014 til að kaupa lóð af því. Verðið sem hjúkr­un­ar­heim­ilið seldi lóð­ina á nam ein­ungis tæp­lega 1/5 hluta af því sem lóðin var á end­anum seld á árið 2022. Með þessu móti mynd­að­ist hagn­að­ur­inn af sölu lóð­ar­innar í öðru félagi en hjúkr­un­ar­heim­il­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár