„Hversu mörg líf ætlum við að horfa upp á kveðja þennan heim?“

Umræður um mál­efni fólks með fíkni­vanda voru áber­andi í ræðum þing­manna á Alþingi í dag. Er það í kjöl­far skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem leiddi í ljós að engin stefna væri fyrir hendi í mála­flokknum.

„Hversu mörg líf ætlum við að horfa upp á kveðja þennan heim?“
Arndís Anna , þing­maður Pírata, tók til máls á Alþingi í dag og sagði að löngu væri kom­inn tími á rót­tækar aðgerðir. Mynd: Golli

Nýleg skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar var áber­andi í mál­flutn­ingi þing­manna í störfum þings­ins í dag. Kölluðu þing­menn eftir því að eitt­hvað væri að hafst í mála­flokknum.

Í ræðu sinni nefndi Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, að 139 mann­eskjur hefðu látið lífið vegna ópíóða síð­ast­liðin sjö ár. Meiri­hluti þeirra var yngri en 44 ára. „Þar sem er enn þá verra er að lesa um algjört sinnu­leysi rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart þessum dauðs­föllum,“ sagði hún. 

Þór­hildur Sunna gagn­rýndi að heil­brigð­is­ráðu­neytið bæri fyrir sig að það þyrfti ekki að taka for­ystu í mála­flokknum vegna þess að verk­efnið væri sam­fé­lags­legt og flókið. „Þetta heitir að skor­ast undan skýrri ábyrgð. Þetta heitir að hunsa mik­il­vægt hlut­verk heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í því að bjarga manns­lífum.“

Sagði hún að ótrú­legt væri hve lengi mál­efni fíkni­sjúkra hefðu fengið að „velkj­ast um í ein­hverjum póli­tískum skolla­leik, stefnu­mót­unum, starfs­hópum, umhugs­unum og umþótt­un­ar­tíma ráð­herra sem hafa ekki hug­rekki til að taka þær ákvarð­anir sem þarf að taka til að bjarga manns­lífum. Þetta er ófor­svar­an­legt.“

Dökk mynd af stöðu mála

Í skýrsl­unni, sem birt­ist fyrr í dag, kom fram að ekk­ert ráðu­neyti eða stofnun hefði tekið for­ystu í málum sem varða ópíóða­fíkn eða fíkni­vanda almennt. Engin stefna væri fyrir hendi. Í skýrsl­unni birt­ist dökk mynd af stöðu mála. 

Enginn aðili hefur fulla yfir­sýn yfir fjölda ein­stak­linga sem glíma við ópíóða­vanda. Umfang vand­ans er því stjórn­völdum óljóst. Rík­is­end­ur­skoðun segir að full­víst sé að ópíóða­vand­inn falli undir ábyrgð­ar­svið heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Þrátt fyrir það fellur ábyrgðin á herðar gras­rót­ar­sam­taka og heil­brigð­is­stofn­anir á þeirra vegum, s.s. SÁÁ.

Starfshópar striti við að finna upp hjólið

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar hefði rifið grímuna af „alvar­legu stefnu­leysi og skorti á skýrri for­ystu í bar­átt­unni gegn ópíóða­fíkn og vímu­efna­vand­anum almennt.“ 

Hún vildi vita hve lengi ætti að umbera van­ræksl­una. „Hversu mörg líf ætlum við að horfa upp á kveðja þennan heim á meðan hver starfs­hóp­ur­inn á fætur öðrum stritar við að finna upp hjólið? Á bak við tölur og tækni­legt orða­lag eru raun­veru­legar mann­eskjur sem þjást.“ Arndís Anna segir að fyrir löngu sé kom­inn tími á rót­tækar aðgerðir. Ástandið væri brestur í sam­fé­lag­inu sem sýndi djúp­stætt skiln­ings­leysi og skort á sam­kennd.

„Úttektin varpar skýru ljósi á full­kom­inn skort á póli­tískri for­ystu, stefnu­leysi og þoku­kennda sýn á mála­flokk­inn,“ sagði Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.  Gagn­rýndi hún að fram­boð á með­ferð fyrir fíkni­sjúk­linga byggði hvorki á mati á þörf né á opin­berri stefnu­mótun. „Yfir­sýnin er engin. Ungt fólk deyr svo að segja viku­lega ótíma­bærum dauð­daga vegna ópíóíða­fíknar. Þetta má ekki vera svona.“

Málaflokkurinn dangli á sjálfstýringu

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, sagði að árlega leit­uðu þús­undir ein­stak­linga á náðir heil­brigð­is­kerf­is­ins með ban­vænan sjúk­dóm en samt sem áður ríkti algert for­ystu­leysi í mála­flokknum. 

Sigmar segir skorta end­ur­hæf­ingu, bráða­þjón­ustu og fjár­magn. „Alvar­leg­astur er samt ára­tuga­skortur á ráða­mönnum sem raun­veru­lega skilja vand­ann. Hringir það í alvöru engum bjöllum að nokkur þús­und manns með ban­vænan sjúk­dóm biðja um aðstoð á hverju ein­asta ári? Þetta eru fleiri en grein­ast með krabba­mein á hverju ári.“

Sagði Sigmar að mála­flokk­ur­inn dangl­aði bara á sjálf­stýr­ingu og yfir­völd reiddu sig á gras­rótar- og félaga­sam­tök. En með­ferð meiri­hluta sjúk­linga er fjár­magn­aður með sjálfsaflafé.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, nefndi í ræðu sinni að í Sviss hefði verið ákveðið að afnema refs­ingar fyrir neyslu vímu­efna, afglæpa­væða vörslu neyslu­skammta og bjóða upp á stór­auknar með­ferðir. Þetta hefði borið bylt­ing­ar­kenndan árangur. Dauðs­föllum hafði fjölgað, glæpa­tíðni lækkað sem og útbreiðsla HIV og lifr­ar­bólgu.

„Það er ekki skortur á lausnum eða úrræðum. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Við þurfum bara stjórn­völd sem er raun­veru­lega annt um að bjarga lífum. Byggjum ekki stefnur á kreddum og ein­hverjum til­finn­ingum,“ sagði hún.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Arndís á AA fundum eru bara þeir sem vilja vera ekki þeir sem þyrtu að vera einsog þú gerir þér kannski grein fyrir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár