Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verkefnið sem fólgið er í aðgerða­pakka ríkisins og sveitar­félaga til að liðka fyrir gerð kjara­samninga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­máltíðir í grunn­skólum. Talsmaður Sambands íslenskra sveitar­félaga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­máltíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verkefnið verður útfært í skólum sem hafa útvistað matar­þjónustu sinni.

Ríkið og sveitarfélögin
Ríkið og sveit­ar­fé­lögin munu deila með sér kostn­að­inum við að gera skóla­mál­tíðir grunn­skóla­barna gjald­frjálsar frá ágúst 2024 til loka samn­ings­tím­ans árið 2028. Mynd: Golli

Öllum grunn­skólabörnum verða tryggðar fríar skóla­máltíðir, óháð því hvor þau voru skráð í áskrift áður en ákvörðun ríkisins og sveitar­félaganna um að greiða niður máltíðirnar var tekin. Þetta stað­festir Grétar Sveinn Theódórsson, samskipta­stjóri Sambands íslenskra sveitar­félaga, í samtali við Heimildina.

Tökum Reykjavík til dæmis. Árið 2023 voru 14.755 nemendur skráðir í almenna grunn­skóla í Reykjavík, það er grunn­skóla sem reknir eru af borginni. Í svari við fyrir­spurn Heimildarinnar segir talsmaður Skóla- og frístundsviðs borgarinnar að um 87 prósent nemenda hafi verið skráð í áskrift að skólamat. 

Í haust munu því um 1.900 börn í grunn­skólum Reykja­víkur eiga kost á því að fá skóla­máltíð sem ekki voru skráð í mat. Fyrir foreldra hinna rúmlega 12.800 barnanna, sem voru skráð í skóla­máltíðir, munu aðgerðirnar skila sér í auknum ráðstöfunar­tekjum. 

Kostnaður gjaldfrjálsa skólamáltíða í Reykjavík

Ríkið mun greiða 75 prósent af kostnaði þess að gera skóla­máltíðir gjald­frjálsar en sveitar­félögin restina. Áætlað er að kostnaður við þessa aðgerð muni nema um fimm milljörðum króna. 

Um stórt og metnaðar­fullt verkefni er að ræða og hefur þessi hluti kjara­samninganna vakið mikla athygli. Ýmis atriði sem snerta nánari útfærslu á aðgerðinni liggja þó en ekki fyrir.

Samkvæmt vef Reykja­víkurborgar kosta skóla­máltíðir 12.836 krónur. Gróflega reiknað munu gjald­frjálsar skóla­máltíðir kosta tæpar 190 milljónir á mánuði. Af þessari upphæð mun Reykja­víkurborg greiða um rúmar 47 milljónir króna. 

Á ársgrundvelli, að frádregnum sumar­mánuðunum júní, júlí og ágúst, mun aðgerðin kosta ríkið og Reykja­víkurborg um 1,7 milljarða króna á ári.  

Vinna að útfærslu fyrir skóla sem hafa útvistað skólamatnum

Nú reka ekki allir grunn­skólar eldhús og útvista þess í stað þjónustunni til einka­fyrirtækja. Á undan­förnum árum hafa grunn- og leik­skólar í  auknum mæli útvistað störfum í eldhúsum skólanna í hagræðingar­skyni.

Er þetta þrátt fyrir að yfirlýst stefna borgarinnar sé að útvista ekki störfum í eldhúsum í  grunn- og leik­skólum. Hins vegar leggst borgin ekki gegn því ef breytingin er gerð að frumkvæði stjórn­enda skólanna.

Spurður hvernig því verði háttað í grunn­skólum þar sem ekki er starfrækt eldhús og máltíðum er útvistað til einka­rekinna fyrir­tækja segir Grétar Sveinn að enn eigi eftir að komast niður­stöðu gagnvart því atriði ásamt öðrum útfærslu­atriðum. 

Þá segir Grétar Sveinn að á næstu mánuðum munu ríkið og sveitar­félögin semja um útfærslu ýmsum útistandandi atriðum. Samkvæmt tilkynningu sem birt var á vef Sambands íslenskra sveitar­félaga er gert ráð fyrir að búið verða að útfæra verkefnið fyrir lok maímánaðar á þessu ári.  

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár