Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

„Það er ekki neitt óeðlilegt við þetta“

Theo­dór Carl Stein­þórs­son, sem vann við fram­kvæmd síma­kosn­ing­ar­inn­ar á úr­slita­kvöldi Söngv­akeppn­inn­ar, seg­ir að ekk­ert óeðli­legt hafi ver­ið við fram­kvæmd henn­ar. Hegð­un inn­hring­inúm­era hafi ver­ið sam­bæri­leg og á öðr­um keppnis­kvöld­um. „Þetta er allt sam­kvæmt bók­inni,“ seg­ir hann. Nið­ur­stað­an hafi ver­ið sann­gjörn.

„Það er ekki neitt óeðlilegt við þetta“
Hera Björk sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins á laugardaginn. Mynd: RÚV

Mikil umræða hefur skapast í kringum símakosningu Söngvakeppni sjónvarpsins sem haldin var á laugardaginn. Þar bar Hera Björk með laginu Scared of Heights sigur úr býtum í einvígi sínu við Bashar Murad og lag hans Wild West. 

Vísir greindi frá því í gær að feðgar hefðu reynt að kjósa bæði Heru og Bashar á laugardaginn með símhringingum. Föðurnum tókst að kjósa Heru án vandræða en þegar sonurinn ætlaði að kjósa Bashar slitnaði línan strax. Hann reyndi að hringja nokkrum sinnum en það tókst aldrei. 

Í gær greindi Vísir einnig frá því að Einar Stefánsson, lagahöfundur „Wild West,“ hefði skrifað forsvarsmönnum Söngvakeppninnar bréf og krafist sjálfstæðrar rannsóknar á kosningu keppninnar. Vill Einar enn fremur endurtekningu símakosningarinnar.

Villumelding ekki vegna galla í framkvæmd keppninnar

Theodór Carl Steinþórsson starfar í vörustýringu á fyrirtækjasviði Vodafone og hefur verið viðriðinn framkvæmd símakosninga á Íslandi í 20 ár. Tók hann meðal annars þátt í framkvæmd kosningarinnar …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það er óheppilegt að ekki skuli gilda sömu reglur í keppninni hér heima og í aðalkeppninni úti. Þá á ég við að hér fer fram val á milli tveggja efstu en ekki í keppninni úti.
    Ef sömu reglur hefðu gilt hefði Bashar unnið með miklum mun og einnig hefðu Reykjavíkurdætur unnið í fyrra.
    Val á milli efstu tveggja stuðlar að lélegri árangri Íslendinga úti. Sérstök lög sem gjarnan ná langt í keppninni úti tapa oftast þegar valið er á milli tveggja efstu.
    Ég er viss um að Bashar myndi ná lengra í keppninni úti en Hera og einnig nokkuð viss um að Reykjavíkurdætur hefðu náð lengra í fyrra en Systur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár