„Ungur maður óskast“

Leikhús­gagn­rýnandinn Sigríður Jóns­dóttir rýnir í verkið Kannibalen sem hún segir að fjalli á yfir­borðinu um mannát og morð en sé í rauninni um gjör­eyðandi þunglyndi og einmana­leika.

Leikhús

Kannibalen

Niðurstaða:

(Sjálfs)eyðandi eymd og einsemd

Kannibalen eftir Johannes Lilleøre

Tjarnarbíó

Leikstjóri: Adolf Smári Unnarsson

Leikarar: Fjölnir Gíslason og Jökull Smári Jakobsson

Ljósahönnun og tæknilegar útfærslur: Magnús Thorlacius

Tónlist: Ronja Jóhannsdóttir

Búningahönnuður: Júlía Gunnarsdóttir

Þýðing: Adolf Smári Unnarsson og Júlía Gunnarsdóttir

Gefðu umsögn


„Hæ, ég er að leita að ungum stæltum manni til þess að slátra. Hann á að vera á aldrinum 18 til 30 ára.

Áhuga­samir skulu ekki hika við að hafa samband.

Ég er svangur.

Franky.“

Þann 29. desember 2000 birtist þessi færsla í myrku horni á internetinu. Mörg gera sig breið og láta fantasíur flakka undir skjóli nafn­leysis á spjall­borðum vefsins án þess að framkvæma ætlunar­verk sín en í þetta skiptið lá dauðans alvara á bak við skila­boðin. Tveir þýskir menn finna hvor annan og ákveða að mæla sér mót til að láta sína dýpstu og dimmustu þrár rætast. Danska leikritið Kannibalen eftir Johannes Lilleøre er byggt á skelfi­legum og sann­sögulegum atburðum sem áttu sér stað þegar internetið var í þann mund að yfirtaka heiminn og umbreyta samskipta­máta mann­kynsins.  

Á yfir­borðinu fjallar Kannibalen um mannát og morð en er í rauninni um gjör­eyðandi þunglyndi og einmana­leika. Örvænting mannanna tveggja í leit sinni að einhvers konar frelsun og fróun leiðir þá saman. Annar vill tortíma sjálfum sér, hinn vill sameinast annarri manneskju. Annar vill láta borða sig, hinn vill borða annan mann. Lilleøre blandar saman skáldskap og heimilda­leikhúsi til að rannsaka mögulegar ástæður sem geta legið að baki atburði sem virðist með öllu óskiljanlegur. Höfundi tekst best til þegar hann beinir smásjánni að aðdrag­anda fundarins, deginum örlaga­ríka og klukku­tímunum eftir að fyrsta ofbeldis­verkið er framið.

„Örvænt­ing mann­anna tveggja í leit sinni að ein­hvers konar frelsun og fróun leiðir þá saman.“

Mannætan hafði ekki hugsað málið til hlítar

Tíminn virðist afstæður þegar mennirnir tveir mætast. Fortíð, nútíð og framtíð þeirra beggja sullast saman, eins og blóð og baðvatn á flísa­lögðu gólfi. Þeir gera vandræðalegar tilraunir til að ræðast við áður en hafist er handa en að láta fantasíur raun­gerast er stundum flókið, við getum ekki hlaupið undan mannlegum breysk­leika. Þýðingin er í höndum Adolfs Smára Unnars­sonar, leik­stjóra sýningarinnar, og Júlíu Gunnars­dóttur sem tekst ágætlega til en texta­flæðið teppist í einstaka atriðum. Sömuleiðis fatast höfundi flugið í seinni hluta verksins, sem er tiltölu­lega stutt, þegar annað fólk er tekið inn í þennan heim.

Adolf Smári finnur aðrar sviðs­rænar lausnir á textanum og aðstæðum heldur en að endur­skapa einhvern raun­veruleika, frekar er honum hafnað. Mennirnir standa einir andspænis hvor öðrum, á móti heiminum í dimmu óljósu rými með ekkert nema hljóðnema og kvikmynda­tökuvél til að setja mark sitt á veröldina. Fjölnir Gíslason og Jökull Smári Jakobsson leika mennina tvo, sem og aðrar persónur. Báðir eru þeir að stíga sín fyrstu skref á atvinnu­leiksviði en Jökull hefur verið áberandi í sjálf­stæðum leik­sýningum nýlega. Hrátt umhverfi sýningarinnar er krefjandi því báðir eru þeir algjör­lega berskjaldaðir. Þeir eiga sín eftir­minnilegu augnablik, sérstak­lega þegar á hólminn er komið á sveita­setrinu. Jökull sýnir þó meiri tilfinninga­breidd og öryggi en Fjölnir á einstak­lega áhrifa­ríka senu þegar mannætan uppgötvar að kannski hafði hann ekki hugsað málið til hlítar.

Áhorfendur hvattir til að ögra sér

Tónsmiðurinn Ronja Jóhanns­dóttir er nýtt nafn í leik­húsinu og fyrir­heitin lofa góðu. Kurrandi rafmagns­tónar marra undir sýningunni og smjúga inn í tauga­kerfið. Nauðsynlegt er að ræða um aðkomu Magnúsar Thorlacius sem sér bæði um ljósa­hönnun og aðrar tæknilegar útfærslur. Ljósa­uppsetningin og notkun á lýsingu er með því betra sem hann hefur framkvæmt, hrá og einangrandi.

Eins og með önnur verk sýnd í Tjarnarbíó er sýningar­tími Kannibalen stuttur. Þrátt fyrir vankanta eru áhorf­endur hvattir til að ögra sér, kaupa miða, endurmeta fyrir fram gefnar hugmyndir um þennan skelfi­lega viðburð og mennina sem framkvæmdu verknaðinn. Kannibalen beinir sviðs­ljósinu að þeirri staðreynd að fátt í mannlegu eðli er eins og það virðist í fyrstu. Leik­skáldið veltir upp forvitni­legum spurningum um eðli samþykkis og hversu langt við erum tilbúin að ganga til þess að vera ekki miður okkar eða ein.

Niður­staða: Forvitnileg sýning um mannlegan harmleik.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár