Aukin umsvif lyfjarisans skýri áttföldun greiðslna

Danski lyfj­aris­inn Novo Nordisk greiddi íslensku heil­brigð­is­starfs­fólki, -félögum og -stofn­unum 15 millj­ónir króna í fyrra. Sú upp­hæð er sam­bæri­leg þeirri árið áður en frá 2020 til 2022 átt­fald­að­ist upp­hæðin sem fyr­ir­tækið greiddi Íslend­ingum.

Aukin umsvif lyfjarisans skýri áttföldun greiðslna
Stjórinn Lars Fruergaard Jørg­en­sen, aðal­fram­kvæmda­stjóri Novo Nordisk. Fyr­ir­tæki hans hefur grætt risa­vaxnar upp­hæðir á lyfjum sem notuð eru við syk­ur­sýki og offitu en einnig í megr­un­ar­skyni. Mynd: AFP

Novo Nordisk, sem er þekkt­ast fyrir lyf sem eru notuð til þyngd­ar­stjórn­unar, hagn­að­ist um það sem jafn­gildir um 1.700 millj­örðum íslenskra króna í fyrra, um helm­ingi meira en árið áður. Greiðslur Novo Nordisk til íslensks heil­brigð­is­starfs­fólks, -stofn­ana og fyr­ir­tækja – sem námu 15 millj­ónum í fyrra og sam­tals um 20 millj­ónum árin þrjú á undan – eru því ein­ungis agn­ar­smár dropi úr fjár­sjóði fyr­ir­tæk­is­ins.

Veru­legir fjár­munir renna þó úr vösum Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) til fyr­ir­tæk­is­ins. Um 15% af heild­ar­út­gjöldum SÍ í fyrra fór í að nið­ur­greiða syk­ur­sýkis­lyf sem sum eru einnig notuð til þyngd­ar­stjórn­unar: Saxenda, Wegovy, Ozempic og Victoza. Novo Nordisk fram­leiðir öll lyfin. 12.000 manns tóku þau hér­lendis í fyrra og 8.000 þeirra fengu greiðslu­þátt­töku SÍ. Aðeins 1.700 manns fengu lyfj­unum ávísað með greiðslu­þátt­töku árið 2019. Á sama tíma og …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár