Fangar kalla fangelsin „kjötgeymslur í núverandi mynd“

Dóms­mála­ráð­herra telur að hægt sé að halda lág­mark­s­við­haldi á Litla-Hrauni við til að tryggja starf­semi næstu fimm til sex árin. „Það er löngu orðið tíma­bært að byggja nýtt fang­elsi og það erum við að gera,“ sagði dóms­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í morgun.

Er þetta boðlegt?
Er þetta boð­legt? „Ég geri fast­lega ráð fyrir því að hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra hafi heim­sótt Litla-Hraun nýlega og séð það sama og ég. Heilan hell­ing af skemmdu og ónýtu hús­næði.“ Þetta sagði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í morgun. Beindi hann spurn­ingum sínum að Guðrúnu Haf­steins­dóttur, dóms­mála­ráð­herra.

„Stærsta bygg­ing fang­els­is­ins Litla-Hrauns, hús fjögur, þjónar ekki til­gangi sínum og sterkar vís­bend­ingar eru um að það sé ónýtt. Samt hefur ein­hvern veg­inn verið kvittað upp á að fang­elsið sé not­hæft af öðrum eft­ir­lits­að­ilum, á sama tíma og örygg­is­málum er ábóta­vant.“ Þetta sagði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í óund­ir­búnir fyr­ir­spurnum. Beindi hann fyr­ir­spurn sinni að Guðrúnu Haf­steins­dóttur, dóms­mála­ráð­herra.

Í nýjasta þætti Kveiks var fjall­aði um mál­efni fanga á Litla-Hrauni og ástand bygg­ingar Litla-Hrauns. Alvar­legar athuga­semdir voru gerðar við bygg­ing­una í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem kom út í nóv­em­ber 2023. Stofn­unin telur að bygg­ingin ógni heilsu bæði starfs­fólks og fanga. 

Húsnæðið ónýtt

Björn Leví gagn­rýnir fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra fyrir að hafa hótað að loka opna fang­les­inu Sogni „ef Alþingi myndi ekki leggja fram til meira fjár­magn. 400 millj­ónir vant­aði í rekst­ur­inn. Þar virt­ist fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra hafa stein­gleymt því að það var hann sjálfur sem lagði til fjársvelti fang­elsanna til að byrja með“ sagði Björn Leví. 

„Ég geri fast­lega ráð fyrir því að hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra hafi heim­sótt Litla-Hraun nýlega og séð það sama og ég. Heilan hell­ing af skemmdu og ónýtu hús­næði. Það hefur nefni­lega ekki bara vantað fjár­magn í rekst­ur­inn, heldur einnig í við­hald hús­næðis eins og fram kemur í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.“ Björn Leví spurði dóms­mála­ráð­herra enn­fremur hvort hún telji að hægt sé að upp­fylla skil­yrði laga um fulln­ustu refs­inga með núver­andi fjár­heim­ildum og aðstöðu?

Guðrún sagði í svari sínu að nið­ur­staða Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins væri að það svar­aði ekki kostn­aði „og væri í raun eins og að fleygja pen­ingum“ að fara með 2.000 millj­ónir í end­ur­bætur og við­bygg­ingu á Litla-Hrauni. „Það var nið­ur­staða mín þegar ég kom inn í ráðu­neytið að hefja taf­ar­laust upp­bygg­ingu á nýju fang­elsi.“ Guðrún segir að það muni kosta hund­ruð millj­ónir að halda starf­semi Litla-Hrauns gang­andi en að það liggi fyrir að Fram­kvæmda­skýrsla rík­is­ins telji að hægt sé að fara í nauð­syn­legar lag­fær­ingar á húsa­kost­inum sem nú er til, til að halda starf­semi þar gang­andi í fimm til sex ár. 

Laun fanga

Björn Leví spurði Guðrúnu hvort henni þætti rétt­læt­an­legt að greiða föngum 415 krónur á klukku­stund fyrir vinnu sem leiðir til þess að fangar eiga oft ekki fyrir mat. „Að sögn fanga leiðir það til þess að menn fái lánað, sem leiði til ofbeldis, kúg­unar, upp­töku á fatn­aði og eigum. Nokkrar athuga­semdir fanga sem ég hef fengið. Fangar og tengdir aðilar ganga svo langt að kalla fang­elsin kjöt­geymslur í núver­andi mynd. Núver­andi staða er þannig að allir fangar eru settar undir sama hatt. Þannig eru fangar sem eru jafn­vel í mik­illi neyslu og telja sig ekki hafa neina tapað, eru vistaðir í sam­neyti við á sömu deild og fangar sem eru í bata eða reyni að finna betrun.“ 

„Dæmi eru um að menn klári langa dóma, 24 mán­uði eða lengur, án þess að hitta sál­fræð­ing einu sinni. Lyfja­með­ferð er tak­mörkuð til að sporna við fíkni­efna­vanda og því er oft nauð­syn­legt lyf ekki aðgengi­leg föngum sér­stak­lega til að með­höndla athygl­is­brest og ofvirkni. Sturtu­bún­aður fanga í húsi þrjú á Litla-Hrauni er með öllu ófull­nægj­andi, ekki ein­ungis þurfa fangar að baða sig í sam­eig­in­legu rými heldur er sturtu­bún­aður óvirkur og bil­aður svo fangar hafa tekið til þess ráðs að baða sig með garðslöngu sem hefur verið hengd yfir slá og skilur að rými milli sal­ernis og sturtu­að­stöðu. Er þetta boð­legt? Er þetta starf­hæft?“ spurði Björn Leví.

Guðrún sagð­ist sam­mála fyr­ir­spyrj­anda í þessum mála­flokki og segir þessi mál hafa átt undir högg að sækja í langan tíma á Íslandi. Hún segir nauð­syn­legt að bregð­ast við. „Það er löngu orðið tíma­bært að byggja nýtt fang­elsi og það erum við að gera. Ég hef einnig boðað heild­ar­end­ur­skoðun á fulln­ustu kerf­inu í átt til betr­unar og þetta er vinna sem er að fara af stað og ég tel mjög brýna og mik­il­væga.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár