Tómas með illkynja æxli í ristli

Tómas Guð­bjarts­son læknir hefur frá ára­mótum verið í leyfi frá störfum. Hann greindi frá því í dag að hafa verið í rann­sóknum vegna æxlis í ristli. Reyndist æxlið ill­kynja.

Lækn­ir­inn Tóm­as Guð­bjarts­son hefur verið í leyfi frá störf­um við Land­spít­al­ann síðan í árs­byrjun. „Frá ára­mótum hef ég jafn­framt verið í rann­sóknum vegna æxlis í ristli sem við frek­ari rann­sóknir reynd­ist ill­kynja. Því miður tókst ekki að fjar­lægja það með minni aðgerð og mun ég því þurfa að gang­ast undir stærri skurð­að­gerð bráð­lega,“ skrifar hann á Facebook.  „Fyrir vikið verð ég áfram í veik­inda­leyfi næstu mán­uði. Ég þakka veittan stuðn­ing á síð­ustu vikum,“ segir Tómas í Facebook færslu sinni.

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Þetta helst á RÚV  fyrr á þessu ári var haldið fram að brott­hvarf Tómasar frá störfum tengd­ist aðkomu hans að plast­barka­mál­inu. Sögðust umsjón­ar­menn þátt­ar­ins hafa heim­ildir fyrir því að fram­tíð og staða Tómasar væri í skoðun hjá æðstu stjórn­endum Land­spít­al­ans. Ein­hverjir teldu að hann yrði að hætta störfum vegna aðkomu sinnar að plast­barka­ígræðsl­unni á Andemariam Beyene.

Tómas var lækn­ir And­emari­ams Beyene sem lést í kjöl­far plast­barka­ígræðslu ár­ið 2011. Paolo Macchi­ar­ini, sá sem fram­kvæmdi ígræðsl­una, fékk Tóm­as til að halda því fram að aðr­ar með­ferð­ir væru úti­lok­að­ar fyr­ir And­emariam.

Tómas birti færslu á Facebook 8. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann hafn­aði því að leyfið væri vegna plast­barka­máls­ins. Lands­spít­al­anum. Hann sagð­ist hafa sótt sjálfur um sjúkra leyfi og með því hafi hann verið að fylgja ein­dregnum ráðum lækna. „Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hags­muni sjúk­linga minna í huga“.

Í starfi hjarta- og lungna­skurð­læknis geti mis­tök í aðgerð auð­veld­lega ógnað lífi þeirra, en „í þeim stormi sem hefur geisað und­an­farið hef ég ekki haft þá ein­beit­ingu sem starfið krefst. Stjórn­endur á Land­spít­ala hafa stutt þessa ákvörðun mína.“

Færslu Tómasar í dag í heild sinni er hægt að lesa hér að neðan:

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár