Magnaðar myndir af íslenskri náttúru vinna til alþjóðlegra verðlauna

Í alþjóð­legri sam­keppni um ferða­ljós­mynd árs­ins unnu tvær myndir af íslenskri nátt­úru til verð­launa. Önnur myndin sýnir fljót­andi hraun úr Litla-Hrút og hin Svína­fells­jökul.

Tvær myndir sem teknar voru á Íslandi voru á meðal verð­launa­mynda í alþjóð­legri ljós­mynda­sam­keppni um ferða­ljós­mynd árs­ins, International Travel Pho­tograp­her of the Year. Verð­launa­haf­arnir voru kynntir á BBC, en þar kemur fram að alls hafi ljós­mynd­arar frá 150 löndum sent inn yfir 20 þús­und ljós­myndir.

Mynd­irnar sem teknar voru hér á landi og unnu til verð­launa voru veittar ann­ars vegar í flokki ungra ljós­mynd­ara og hins vegar flokki lands­lags og umhverfis. 

Ljós­mynd­ar­inn sem vann til verð­launa í flokki ungra ljós­mynd­ara heitir Zayan Durrani og er fjórtán ára gam­all. Hann kom til Íslands með föður sínum til að skoða eld­gosið við Litla-Hrút og tók dróna­mynd af gos­inu. Í við­tali við BBC segir hann þá feðga hafa verið í kapp­hlaupi við tím­ann þegar þeir gengu að Litla-Hrút þar sem farið hafi verið að dimma og þétt þoka var að breið­ast yfir dal­inn. 

Armand Sar­langue vann síðan til verð­launa í flokki lands­lags og umhverfis fyrir mynd af Svína­fellsjökli. Myndin var tekin með dróna í víð­mynd. Þar sést vel hvernig jök­ull­inn rennur ofan í jök­ul­vatnið og jök­uláin streymir burt. 

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár