Almannavarnir rannsaka sjálfar sig eftir að rannsóknarnefnd var aflögð

Þrátt fyrir ítrekað almanna­varnar­á­stand á und­an­förnum árum og for­dæma­lausar íþyngj­andi aðgerðir í tengslum við þær, lögðu stjórn­völd niður nefnd sem ætlað var að rann­saka hvernig yfir­völd almanna­varna færu að í slíku ástandi. Dóms­mála­ráð­herra færði eft­ir­litið yfir til almanna­varna sjálfra eftir að hafa rök­stutt það að leggja af nefnd­ina, með þeim rökum að hans eigin ráðu­neytið hefði aldrei gert henni kleift að sinna skyldum sínum.

Almannavarnir rannsaka sjálfar sig eftir að rannsóknarnefnd var aflögð
Inn og út Jón Gunn­ars­son fagn­aði stofnun rann­sókn­ar­nefndar almanna­varna þegar hann var þing­maður en er hann sett­ist í stól dóms­mála­ráð­herra lagði hann nefnd­ina niður. Mynd: Golli

„Ég vona satt best að segja að það séu ekki mörg svona dæmi í stjórn­sýsl­unni. Þetta er eig­in­lega efni í bók,“ segir Herdís Sig­ur­jóns­dóttir, sem gegndi í átta ár for­mennsku í rann­sókn­ar­nefnd almanna­varna sem sett var á lagg­irnar með lögum árið 2008 og skipuð af Alþingi á fimm ára fresti, þrátt fyrir að vera aldrei gert kleift að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum.

„Árum saman reyndi ég að sjá til þess að nefndin starf­aði í sam­ræmi við lög og sinnti sjálf­stæðu eft­ir­liti, en án árang­urs,“ rifjar Herdís upp. Lög gerðu ráð fyrir því að nefndin rann­sak­aði aðgerðir Almanna­varna og við­bragðs­að­ila í hvert sinn sem lýst var yfir hættu­á­standi almanna­varna, sem voru allt að 15 til­vik á hverju ári að sögn Herdísar. Á 14 árum lauk nefndin ekki einni rann­sókn. 

Fyrir tveimur árum var nefndin lögð niður og eft­ir­lit með almanna­vörnum flutt til Almanna­varna og ráðu­neytis almanna­varna.

Nýja fyr­ir­komu­lagið …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Lýðræði og réttarríki byggja á skipulagi þar sem óháðar stofnanir hafa eftirlit og gefa hver annarri aðhald.
    Þetta er alvarlegt mál.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár