Fréttamál

Súðavíkurflóðið

Greinar

Þingið samþykkir tillögu um skipun rannsóknarnefndar um Súðavíkurflóðið
FréttirSúðavíkurflóðið

Þingið sam­þykkir til­lögu um skipun rann­sókn­ar­nefndar um Súða­vík­ur­flóðið

Alþingi sam­þykkti rétt í þessu að skipa rann­sókn­ar­nefnd vegna snjó­flóðs­ins sem féll á Súðavík í jan­úar 1995. Fjöl­mörgum spurn­ingum er ósvarað um það hvernig yfir­völd brugð­ust við í aðdrag­anda og eft­ir­leik flóð­anna. Fjórtán lét­ust í flóð­inu þar af átta börn. Aðstand­endur hinna látnu hafa farið fram á slíka rann­sókn síðan flóðið varð. Nýjar upp­lýs­ingar í mál­inu komu fram í rann­sókn Heim­ild­ar­innar fyrir ári.
Almannavarnir rannsaka sjálfar sig eftir að rannsóknarnefnd var aflögð
Fréttir

Almanna­varnir rann­saka sjálfar sig eftir að rann­sókn­ar­nefnd var aflögð

Þrátt fyrir ítrekað almanna­varnar­á­stand á und­an­förnum árum og for­dæma­lausar íþyngj­andi aðgerðir í tengslum við þær, lögðu stjórn­völd niður nefnd sem ætlað var að rann­saka hvernig yfir­völd almanna­varna færu að í slíku ástandi. Dóms­mála­ráð­herra færði eft­ir­litið yfir til almanna­varna sjálfra eftir að hafa rök­stutt það að leggja af nefnd­ina, með þeim rökum að hans eigin ráðu­neytið hefði aldrei gert henni kleift að sinna skyldum sínum.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bendir þing­inu á að rann­saka aðdrag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis væri til þess fallin að skapa traust um nið­ur­stöður rann­sóknar á aðdrag­anda og eft­ir­málum snjó­flóð­anna í Súðavík 1995. Flóðin hafi verið reið­ar­slag fyrir íslenskt sam­fé­lag.
Hættan í Súðavík skjalfest áratug fyrr af sérfræðingi Veðurstofu
ViðtalSúðavíkurflóðið

Hættan í Súðavík skjal­fest ára­tug fyrr af sér­fræð­ingi Veð­ur­stofu

Vinnu­gögn snjó­flóða­sér­fræð­ings sem starf­aði á Veð­ur­stof­unni til 1984 sýna að snjó­flóða­hætta í Súðavík var mun meiri á því svæði sem seinna var sagt hættu­laust en fór undir snjó­flóð árið 1995. Höfundur þess furðar sig á því að yfir­völd hafi sett fram hættu­mat, sem stang­að­ist á við þeirra eigin gögn.
Forsætisráðherra boðar fund vegna Súðavíkurflóðs
FréttirSúðavíkurflóðið

For­sæt­is­ráð­herra boðar fund vegna Súða­vík­ur­flóðs

Krafa aðstand­enda þeirra sem fór­ust í Súða­vík­ur­flóð­inu um skipan rann­sókn­ar­nefndar var send for­sæt­is­ráð­herra og þing­nefnd í síð­ustu viku. For­sæt­is­ráð­herra hefur þegar boðað lög­mann aðstand­end­anna á sinn fund. Formaður þing­nefnd­ar­innar segir ein­boðið að setja slíka nefnd á fót. Fyrir því séu bæði efn­is­leg og sið­ferð­is­leg rök.

Mest lesið undanfarið ár