Þorvaldur segir gosinu líklega að ljúka en Veðurstofan varar við

Veð­ur­stofan varar við því að nýjar sprungur og gosop mynd­ist í eða við Grinda­vík. Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir í sam­tali við Heim­ild­ina að miðað við þróun goss­ins sé ólík­legt að fleiri gosop opn­ist á næst­unni. Hann telur senni­legra að gos­inu muni brátt ljúka, í bili.

Þorvaldur segir gosinu líklega að ljúka en Veðurstofan varar við
Dregið hefur úr krafti eld­goss­ins sem valdið hefur miklu tjóni í Grinda­vík. Út frá nýlegum mæl­ingum Veð­ur­stof­unnar hefur bær­inn gliðnað um allt 1,4 metra á síð­asta sól­ar­hring. Mynd: Golli

Jafnt og þétt hefur dregið í krafti eld­goss­ins við Grinda­vík og flæðið úr syðri sprung­unni, skammt frá bæj­ar­mörk­unum, lítur út fyrir að hafa stöðvast. Þrátt fyrir vís­bend­ingar um að gos­inu fari senn að ljúka hafa nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingar Veð­ur­stofu Íslands lagt áherslu á að svæðið er enn skil­greint sem hættu­svæði og óvissan um hvað ger­ist næst er enn mikil. Varað er við mögu­legri opnun nýrra gossprungna á svæð­inu.

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hann telji meiri líkur á því að gos­inu fari senn að ljúka. „Eins og staðan er núna, það hefur dregið mjög úr gos­inu, manni finnst það svona stefna meira í það að bara deyi út og þessu sé þá bara lokið, í bili,“ segir Þor­valdur. 

Þá telur Þor­valdur lík­legt að kvikan sem streymir nú úr gosop­inu rétt sunnan Haga­fells komi úr kviku­hólfi sem er við það að tæm­ast. Ef kvikan „er ein­göngu úr þessu grunna geymslu­hólfi sem er á 4-5 kíló­metra dýpi undir Svarts­engi þá ef þú horfir bara á stærð­ina á hraun­inu þarna þá passar það vel við að það er búið að taka það sem þú getur tekið úr því hólfi í einu gosi. Það þarf að hlaða í aftur, það er, það færi í næsta atburð,“ segir Þor­valdur. 

Þor­valdur telur að í umræddu kviku­hólfi hafi safn­ast fyrir um 10 milljón rúmmetrar af kviku. Helm­ingur þess hafi flætt út í síð­asta eld­gosi, þann 18. Desember og hinn helm­ing­ur­inn hafi flæði út í þessu gosi. „Ef þetta er það sem er raun og veru að ger­ast að þá er þetta gos að verða búið.

Tvær sviðsmyndir

Spurður hvort hann telji að fleiri gossprungur geti mynd­ast á svæð­inu segir Þor­valdur ekki geta úti­lokað það, þó svo honum finn­ist það vera ólík­leg sviðs­mynd.

Nýlegar mæl­ingar gefa til kynna að land­ris hafi haldið áfram við Svarts­engi. Þor­valdur segir að tvær útskýr­ingar hafa komið fram, sem skýra þessa þróun. Kenn­ing­arnar end­ur­spegla gjör­ó­líkar sviðs­myndir. 

„Önnur er að land­risið sé bara afleið­ing af þessu gangainnskoti sem var þarna austan við Hagafell og Svarts­eng­is­stöðv­arnar, þar sem verður upp­lyft­ing á því svæði í tengslum við myndun á gang­inum.“ 

Hin kenn­ingin gerir ráð fyrir að áfram­hald­andi land­ris í Svarts­engi komi til vegna auk­ins inn­flæði af kviku sem komi dýpra úr jörð­inni. „Sem sagt úr dýpra geymslu­hólf­inu og væri þá við­bót við það sem var komið í geymslu­hólfið. Ef það rétt gæti það við­haldið gosi af ákveðnu afli,“ segir Þor­valdur. 

Hann telur þó að miðað við það sem hefur verið er að ger­ast núna, bendi það til þess að fyrri sviðs­myndin sé lík­legri en sú seinni. Þá tekur Þor­valdur fram að þær jarð­hreyf­ingar sem hafa verið að mæl­ast nýlega eru ekki allar endi­lega vegna kviku­hreyf­inga. Þarna séu líka hreyf­ingar að mæl­ast sem koma til vegna fleka­skila.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár