Myndband sýnir ástandið í Grindavík í dag

Mynd­skeið sýnir hvernig hraun­straum­ur­inn sveigði fram hjá byggð­inni, fyrir utan tvö hús sem brunnu og eitt sem varð undir. Varað er við því að ný gosop geti mynd­ast inni í byggð­inni.

Hraun í byggð Húsin að Efrahópi 20 og 3 sluppu naumlega undan hraunflæðinu. Óvitað er hversu miklar skemmdir eru á húsum í Grindavík vegna gliðnunar.

Nýtt dróna­mynd­band Heim­ild­ar­innar sýnir hvernig umhorfs er í Grinda­vík í dag. Um leið og eyði­legg­ingin í Efrahópi blasir við verður að telj­ast ótrú­legt hvernig hraun­taum­ur­inn teygir sig á milli ann­arra húsa.

Fyrst tók hraunið í gær nýbyggt húsið að Efrihópi 19, sem fjöl­skyldan hafði áformað að flytja inn í fljót­lega áður en ástandið hófst í Grinda­vík. „Þangað til í gær­morg­un var ég bara á leið­inni heim,“ sagði eig­and­inn, Hrannar Jón Emilsson, í við­tali við mbl.is. Næst fór Efrahóp 16 sem varð alveg undir hraun­inu. Þar bjuggu Unn­dór Sig­urðs­son, Birna Ýr Skúla­dótt­ir og börn­in þeirra þrjú: 4, 8 og 14 ára. Þau misstu allt inn­búið með hús­inu. Unndór lýsti því í við­tali við mbl.is að hann ætl­aði sér að „halda áfram að berj­ast“ sem „gegn­heill Grind­vík­ingur“. „Því fylgja væg­ast sagt blendn­ar til­finn­ing­ar að fylgj­ast með beinni út­send­ingu í sjón­varpi og sjá heim­ili sitt brenna. Þetta er ofboðs­legt áfall sem verður nokk­urn tíma að sunka inn í sál­ar­lífið,“ sagði hann.

Síðar brann húsið við Efrahóp 18 undan jarð­eld­inum. 

Heim­ildin / Golli

Ekkert hraun­streymi er lengur úr syðri gígnum. Hins vegar er ótt­ast að meiri gliðnun sprunga og jafn­vel ný gosop geti komið upp innan byggð­ar­innar eða í nágrenni hennar.

Eins og segir í nýrri skýrslu Veð­ur­stof­unnar: „Út frá mæl­ingum hefur gliðnun innan bæj­ar­markanna verið allt að 1,4 m síð­asta sól­ar­hring­inn sem dreif­ist yfir margar sprungur, nýjar hafa mynd­ast og eldri opn­ast meira. Nýjar sprungur geta verið að koma í ljós á yfir­borði næstu daga. Eins og áður hefur komið fram þá eru gos­s­töðv­arnar mikið hættu­svæði og ekki er hægt að úti­loka að nýjar gossprungur opn­ist án fyr­ir­vara. Það var til­fellið þegar sprungan opn­að­ist við bæj­ar­mörk Grinda­víkur í gær. Engin merki sáust á mæli­tækjum í tengslum við þá gosopnun sér­stak­lega.“

Hraun rennsli eftir varn­ar­garð­inumFarvegur hrauns­ins lá með­fram varn­ar­garð­inum og þar með yfir Grinda­vík­ur­veg­inn og vatns­veitu­lagnir.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár