Virðist hætt að gjósa úr sprungunni sem tók húsin

Miklar skemmdir eru á innviðum í Grinda­vík og hraun­rennsli úr sprungu við bæj­ar­mörkin tók þrjú hús. Ekki er að sjá að fleiri hús hafi orðið hraun­inu að bráð og svo virð­ist sem að það gjósi ekki lengur úr sprung­unni rétt utan við göt­una Efrahóp.

Virðist hætt að gjósa úr sprungunni sem tók húsin
Gos við bæj­ar­mörk Hraun flæddi inn í byggð í gær í fyrsta sinn á Íslandi síðan í jan­úar 1973, þegar slíkt gerð­ist í Vest­manna­eyjum. Mynd: Golli

Það virð­ist ekki lengur gjósa úr sprung­unni sem opn­að­ist innan varn­ar­garða, og við bæj­ar­mörk Grinda­víkur, með þeim afleið­ingum að þrjú hús fóru undir hraun í gær. Hraun­straumur úr þeirri sprungu virð­ist alveg hafa stöðvast. Þetta kemur fram á vef RÚV. Ekki er að sjá að fleiri hús hafi orðið hraun­inu að bráð, en þau sem það urðu stóðu öll við göt­una Efrahóp í Grinda­vík.

Þar er rætt við Elísa­betu Pálma­dóttur, nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ing á Veð­ur­stofu Íslands, sem segir að hraun­flæðið úr fyrri sprung­unni sem opn­að­ist, og var mun stærri, hafi minnkað og að gas frá eld­stöðv­unum blási á haf út. 

Af myndum að dæma virð­ist þorri þess hrauns sem rann úr stærri sprung­unni hafa runnið með­fram varn­ar­garð­inum sem verið var að reisa við Grinda­vík þegar gosið hófst rétt fyrir klukkan átta í gær­morgun. 

Nóttin var að mestu tíð­inda­lítið og hraun­rennslið úr gos­inu virð­ist minna en ótt­ast var. 

Skemmdir á innviðum og verðmætabjörgun

Miklar skemmdir hafa orðið á innviðum í Grinda­vík. Rafmagns- og hita­vatns­laust er í bænum og lagnir, sem þegar hafa hreyfst veru­lega til og í ein­hverjum til­vikum farið undir hraun, gætu skemmst hratt í því frosti sem er framundan tak­ist ekki að koma heitu vatni á bæinn fljót­lega. 

Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að menn sem sáust hlaupa í átt að gos­inu skömmu eftir að það hófst til að bjarga vinnu­vélum sem voru á svæð­inu hafi tek­ist að bjarga verð­mætum upp á um 800 millj­ónir króna. Alls tóku átta menn þátt í þeim aðgerðum, þar af tveir björg­un­ar­sveit­ar­menn sem voru með gasmæla og vökt­uðu svæðið.

Aðgerðir kynntar í dag

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boð­aði stór­auknar stuðn­ings­að­gerðir fyrir Grind­vík­inga á blaða­manna­fundi almanna­varna í gær en fór ekki yfir nákvæm­lega í hverju þær muni fel­ast. Grind­vík­ingum verði tryggður auk­inn aðgangur að sál­gæslu og annarri bak­þjón­ustu og í dag mun rík­is­stjórn Íslands funda um útfærslu frek­ari stuðn­ings­að­gerða. 

Þær munu snú­ast um hús­næð­is­mál, afkomu fólks í Grinda­vík og stuðn­ing við fyr­ir­tæki í bænum. „Við munum setja stór­auk­inn kraft í að kaupa íbúðir til að tryggja aðgengi að hús­næði fyrir Grind­vík­inga sem er ekki nægi­lega gott nú.“ Mark­miðið sé að koma öllum sem eru í skammtima­hús­næði í örugg­ari stöðu eins fljótt og kostur er. „Við munum flýta, eins og kostur er, allri vinnu við upp­gjör á tjóni í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lagið.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár