Björk Guðmundsdóttir útnefnd heiðursborgari Reykjavíkurborgar

Tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir er útnefnd heið­urs­borg­ari Reykja­vík­ur­borgar. Borg­ar­ráð sam­þykkti þetta í dag. Hún er sjö­undi Reyk­vík­ing­ur­inn til að hljóta þennan titil og mun mun mynd­list­ar­konan Gabríela Frið­riks­dóttir gera Bjarkar- styttu.

Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar útnefndi í dag tón­list­ar­kon­una Björk Guð­munds­dóttur sem heið­urs­borg­ara Reykja­vík­ur­borgar. 

Í til­kynn­ing­unni frá Reykja­vík­ur­borg segir að Björk Guð­munds­dóttir „hefur verið áber­andi í íslensku og alþjóð­legu lista- og menn­ing­ar­lífi um fjög­urra ára­tuga skeið, sem söng­kona, tón­skáld, plötu­út­gef­andi og leik­kona en einnig frum­kvöð­ull og bar­áttu­kona á ýmsum sviðum. Hún er sá íslenski lista­maður sem náð hefur mestri frægð utan land­stein­anna en hún er ekki bara þekkt fyrir hæfi­leika sína og list, heldur einnig ein­stakan per­sónu­leika sem skín í gegnum öll hennar verk. Fáir ef nokkrir hafa lyft nafni Reykja­víkur meira en Björk.“

Björk er fædd og upp­alin í Reykja­vík. Hún hóf sinn tón­list­ar­feril aðeins ell­efu ára gömul þegar hún hóf píanó­nám. Ári síðan, 1977, kom fyrsta platan hennar út þar sem hún söng meðal ann­ars þekkt íslensk barna­lög. „Hún var í hljóm­sveit­inni Tappi tík­arrass en árið 1983 stofn­aði hún ásamt fimm öðrum hljóm­sveit­ina KUKL, sem síðan þró­að­ist út í hljóm­sveit­ina Syk­ur­mol­arnir sem færði Björk heims­frægð aðeins 21 árs gam­alli,“ kemur fram í til­kynn­ing­unni frá Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár