Hlaup hafið úr Grímsvötnum

Jarð­skjálfti af stærð 4,3 mæld­ist í Grím­svötnum klukkan 6:53 í morgun. „Það er stærsti skjálfti í Grím­svötnum frá upp­hafi mæl­inga (1991),“ kemur fram í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands.

Hlaup hafið úr Grímsvötnum
Hlaup hafið úr Grím­svötnum Mynd: Golli

Stærsti jarð­skjálfti sem mælst hefur frá upp­hafi mæl­inga í Grím­svötnum mæld­ist í morgun klukkan 6:53. Jarð­skjálft­inn var 4,3 af stærð. Hlaupórói hefur hægt vax­andi mælst á Gríms­fjalli og síðan í gær hefur vatns­magn í Gígju­kvísl farið vax­andi. „Jök­ul­hlaup er því hafið úr Grím­svötnum,“ segir í til­kynn­ingu Veð­ur­stofu Íslands. Þá segir einnig að jarð­skjálft­inn í morgun hafi lík­lega verið vegna þrýst­ing­s­léttis í kjöl­far upp­hafs jök­uls­hlaups­ins. 

Hlaup í Grím­svötnum var síð­ast í októ­ber 2022 og þar áður í kringum mán­aða­mót nóv­em­ber og des­em­ber árs 2021. „Samkvæmt mæl­ingum Jarð­vís­inda­stofn­unar er vatns­magn í Grím­svötnum nú talið vera um 0,29 km3 sem er helm­ingi (50%) meira en fyrir hlaupið 2022 en tæpur þriðj­ungur vatns­magns fyrir hlaup í lok árs 2021.“

Hlaupið ætti ekki að hafa áhrif á nein mannvirki

Samband við GPS tæki Jarð­vís­inda­stofn­unar næst ekki á íshell­unni í Grím­svötnum. „Tor­veldar það mat á því hversu ört vatnið rennur úr Vötnunum og niður far­veg­inn undir Skeið­ar­ár­jökli. Ef miðað er við að atburða­rás í þessu hlaupi verði svipuð og í síð­ustu tveimur hlaupum má gera ráð fyrir að hámarks­rennsli úr Grím­svötnum verði um eða fljót­lega eftir kom­andi helgi. Hámarks­rennsli  í Gígju­kvísl við Þjóðveg 1 næst svo um 1-2 sól­ar­hringum seinna.“

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að hlaupið ætti ekki að hafa nein áhrif á mann­virki líkt og vegi og brýr. 

„Talið er að skyndi­legur þrýstiléttir vegna lækk­andi vatns­borðs hleypi af stað gosum,“ segir í til­kynn­ing­unni en síð­ast varð eld­gos í Grím­svötnum árið 2011. Það eld­gos var ekki í tengslum við jök­ul­hlaup. 

Vegna jök­ul­hlaups­ins hefur eld­stöðin verið færð á gulan lit þar sem eld­stöðin sýnir merki um virkni umfram venju­legt ástand. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár