Gylfi Þór á leið undir feldinn

Gylfi Þór Þor­steins­son var sæmdur ridd­ara­kross­inum í gær, sama dag og Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti að hann ætl­aði ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu í emb­ætti for­seta Íslands. Þegar hefur fólk komið að máli við Gylfa og hvatt hann til fram­boðs.

Gylfi Þór varð landsþekktur þegar hann sá um rekstur sóttvarnarhúsa Rauða krossins í kórónuveirufaraldrinum.
Gylfi Þór varð lands­þekktur þegar hann sá um rekstur sótt­varn­ar­húsa Rauða kross­ins í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Sam­kvæm­is­leik­ur­inn „Hver verður næsti for­seti Íslands?“ hófst form­lega í gær, á nýj­árs­dag, eftir að Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti opin­ber­lega að hann ætl­aði ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu í emb­ætt­inu.

Gylfi Þór Þor­steins­son er einn þeirra sem ýmsum þykja væn­legur arf­taki hans. Gylfi er einn þeirra sem var sæmdur ridd­ara­kross­inum, heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu, við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í gær en for­seti, í þetta skiptið Guðni Th., veitir ávallt ridd­ara­kross­inn á fyrsta degi nýs árs. Heið­urs­merkið fékk Gylfi „fyrir störf í þágu sam­fé­lags og mann­úðar“.

Hann starfar nú sem teym­is­stjóri hjá Rauða krossi Íslands en varð lands­þekktur þegar hann sá um rekstur sótt­varn­ar­húsa Rauða kross­ins í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Fengið áskoranir

„Eins og ég orð­aði þetta við einn í gær­kvöldi, og kannski orða aftur núna: Haldi þessar beiðnir áfram að koma til mín á næstu dögum þá er þetta greini­lega eitt­hvað sem ég …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Góður þar sem hann er. Takk samt! Er fólk að gera lítið úr fólki?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár