Guðni Th. Jóhannesson býður sig ekki fram í þriðja sinn

Í nýársávarpi sínu til­kynnti Guðni Th. Jóhann­es­son að hann ætli ekki að bjóða sig fram til for­seta í þriðja sinn. Kosn­ingar munu fara fram í sumar.

Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti í nýársávarpi sínu, nú fyrir skömmu, að hann muni ekki sækj­ast eftir því að end­ur­nýja umboð sitt sem for­seti Íslands. Fyr­ir­hug­aðar for­seta­kosn­ingar munu fara fram á þessu ári þann 1. júní, ef fleiri en einn fram­bjóð­andi verða í kjöri. Guðni þakk­aði fyrir liðin ár og stuðn­ing­inn og sagði þetta ekki vera kveðju­stund.

„Gott er að hætta leik þá hæst fer fram“
Guðni Th. Jóhann­es­son
for­seti Íslands í nýársávarpi sínu

Sjötti forseti landsins frá lýðveldisstofnun

Guðni var fyrst kjör­inn í emb­ætti for­seta Íslands 25. júní árið 2016, eftir að hafa sigrað spenn­andi kosn­ingar þar sem honum tókst að tryggja sér um 39 pró­sent greiddra atkvæða. Í þeim kosn­ingum buðu sig fram átta aðrir.

Þar á meðal voru Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason og Halla Tóm­as­dóttir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur og fjár­festir, en hún fékk næst­flest atkvæða. 

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum árið 2020 vann Guðni öruggan sigur. Við­skipta­mað­ur­inn Guð­mundur Franklín Jónsson var sá eini sem að bauð sig fram gegn sitj­andi for­seta og fékk hann 7,9 pró­sent atkvæða.

Guðni hefur áður sagt að honum þyki eðli­legt að for­seti sitji að hámarki í þrjú kjör­tíma­bil. Fram að ávarpi sínu hafði Guðni þó ekki viljað tjá sig um áform sín um að sækj­ast eftir þriðja kjör­tíma­bil­inu.

Í við­tali við RÚV frá júní 2023 sagð­ist for­set­inn ekki verið búinn að ákveða sig hvort hann ætli að fara fram í þriðja sinn. Þegar Guðni til­kynnti um fram­boð sitt árið 2020 gerði hann það í nýársávarpi sínu 1. Janúar 2020.

Forseti og fræðimaður

Áður en að Guðni tók við emb­ætti for­seta Íslands starf­aði hann við rann­sóknir og kennslu við sagn­fræði­deild Háskóla Íslands. Þá hefur hann einnig kennt við Háskól­ann í Reykja­vík, Bifröst og Uni­versity College London.

Í fræði­störfum sínum hefur Guðni einkum rann­sakað stjórn­mála- og utan­rík­is­sögu  20. og 21. aldar. Til að mynda hefur hann gefið út bækur og greinar um þorska­stríðið og land­helg­is­mál, síð­asta bók hans, Stund milli stríða, kom út árið 2022 og rekur sögu land­helg­is­máls­ins 1961 til 1971.

Þá gaf Guðni einnig út bók um efna­hags­hrunið árið 2008, ævi­sögu Gunnar Thorodd­sen árið 2010. Guðni rit­aði einnig sögu for­seta­emb­ætt­is­ins á Íslandi frá lýð­veld­is­stofnun til lok 20. aldar í bók sem kom út árið 2016.

Vorið 2016 varð Guðni flestum lands­mönnum kunnur eftir að hafa verið tíður gestur í sjón­varpi, eft­ir­minni­leg­ast í þátt­unum Kastljós. Þar sem hann var feng­inn til þess að greina atburð­ina í kringum það þegar þáver­andi for­seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, neit­aði for­sæt­is­ráð­herra, þá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, um þing­rof.

Í kjöl­farið fóru ýmsir að skora á Guðna til þess að bjóða sig fram í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fóru síðar um sum­arið.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    lágkúrulegur stimpilpúði valdstjórnarinnar . . . fjölmellurnar minnast ekki einu orði um framboð mitt . . .
    -5
    • J
      Jón skrifaði
      Vil nú ekki fullyrða beinlínis en ef þú segir fyrst fjölmellur og vilt svo jafnframt vera forseti lýðveldisins allt svo, hvort í senn, og það samtímis, þá gæti verið hollráð að kanna statusinn á lingus, það er hægt að fá mælingar á þessu hjá góðu fólki
      1
  • J
    Jón skrifaði
    Hér fer maður með hraustan lingus.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár