„Hundfúl“ yfir hærra verði í Strætó

Verðskrá Strætó hækkar um 11 pró­sent að með­al­tali í upp­hafi næsta árs. Stakur miði í vagn­ana fer þá upp í 630 krónur. Alex­andra Briem kveðst fúl yfir þess­ari verð­hækkun.

„Hundfúl“ yfir hærra verði í Strætó
Verð­hækkun Árskort í Strætó fyrir full­orðna kosta 104 þús­und krónur frá og með 8. jan­úar. Mynd: Davíð Þór

Almenn stök far­gjöld í vagna Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu munu kosta 630 kr. frá 8. jan­úar og árskort full­orð­inna hækkar þann sama dag úr 93 þús­und krónum upp í 104 þús­und krónur. Gjald­skráin er að hækka um 11 pró­sent að með­al­tali.

Alex­andra Briem, vara­for­maður stjórnar Strætó og borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hún sé hund­fúl yfir þessu, en staðan hjá Strætó sé „bara mjög skelfi­leg“.

StrætóAlex­andra Briem situr í stjórn Strætó og segir að þar við borðið hafi eng­inn viljað hækka verðið. Hins vegar hafi ekki tek­ist að sann­færa sveit­ar­fé­lögin um að koma með frek­ari inn­spýt­ingu í rekst­ur­inn.

„Ég var búin að taka tölu­verðan slag fyrir því að við þyrftum ekki að fara í gjald­skrár­hækk­anir umfram verð­lag. En við gátum ekki fengið meiri pen­inga inn og á end­anum þurftum við að velja á milli þess og að fara í tölu­verða þjón­ustu­skerð­ingu. Þetta var ill­skárri kost­ur­inn,“ segir Alex­andra.

Spurð um hve hátt hún telji að gjaldið fyrir stakan strætómiða megi verða, áður en það fari að bitna merkj­an­lega á notkun vagna hjá þeim hópi sem notar strætó ekki nógu oft til að rétt­læta kaup á mán­aðar- eða árskortum, seg­ist Alex­andra ekki vita það, og and­varpar. 

„Það var nátt­úr­lega það sem ég sagði þegar ég var að hvetja til þess að við myndum reyna að brúa bilið meira með hærri auka­fram­lögum til Strætó, en það náð­ist ekki sam­staða um það í eig­enda­hópnum, nema að litlu leyti,“ segir Alex­andra og bætir við að hún telji að gjaldið hefði ekki mátt hækka meira en það gerir nú.

Sem fyrr segir hún þó að verð­hækkun sé betri kostur en það að draga úr þjón­ust­unni. „Þetta er alls ekki góður hlutur til að gera þegar maður vill auka notkun og bæta nýt­ingu, en ég held það myndi hafa meiri áhrif á nýt­ing­una ef fleiri leiðir þyrftu að hætta fyrr á dag­inn eða keyra sjaldnar,“ segir Alex­andra Briem.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár