Pólitísk pólskipti eru að breyta heiminum

Aukin pólun hefur orðið í valda­jafn­vægi heims­ins og fram undan á árinu 2024 er lyk­il­at­burður sem hefur áhrif á alla heims­byggð­ina, þar á meðal Íslend­inga. Eru Banda­ríkin og Kína nýju pólar heims­ins? Eru pól­arnir mun fleiri? Hvernig lítur alþjóða­sviðið út eftir árið og hverjar eru horf­urnar á því næsta?

Pólitísk pólskipti eru að breyta heiminum
BRICS-löndin Leið­togar BRICS-land­anna, án Vla­dimirs Pútín, hitt­ust í Jóhann­es­ar­borg í ágúst. Frá vinstri: Luiz Inacio Lula Da Silva, for­seti Brasilíu, Xi Jinping, for­seti Kína, Cyril Ramaphosa, for­seti Suður-Afríku, Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, og Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands. Mynd: ALET PRETORIUSPOOLAFP

Einn þeirra umræðu­punkta í alþjóða­málum sem ein­kennt hafa árið 2023, rétt eins og und­an­farin ár, eru svokölluð „skautun“ eða „pólun“ heims­ins. Þá hvort heim­ur­inn sé að verða tví­póla eða marg­póla á ný líkt og ein­kenndi alþjóða­sviðið margoft á öldum áður. Heim­ur­inn upp­lifði svo­kallað ein­póla kerfi á árunum eftir fall Sov­ét­ríkj­anna og til að verða dags­ins í dag, þar sem Banda­ríkin stóðu ein uppi sem ofur­veldi á heims­vísu.

Í stuttu máli sagt eiga þessi hug­tök við aðstæður þar sem alþjóða­sam­skipti ein­kenn­ast af yfir­þyrm­andi áhrifum og völdum stór­velda eða banda­lagi blokka. Tvípóla kerfi Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna á tímum kalda stríðs­ins frá lokum seinni heims­styrj­aldar til árs­ins 1991 eða Rómverja og Persa á fornöld, sem stóð yfir í mörg hund­ruð ár, eru ein­kenn­andi dæmi tví­póla kerfis þar sem hvor­ugur aðil­inn er fær um að granda hinum vegna ofur­veld­is­stöðu sinnar. 

Margpóla heimur er aðeins flókn­ara fyr­ir­bæri að negla niður. Evrópa á tímum …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist 2024?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár