„Alveg sannfærður um að það verður gos á þessu svæði aftur“

Þor­valdur Þórð­ar­son segir að eldsum­brota tíma­bil­inu á Reykja­nesskag­anum sé hvergi nær lokið og telur líkur á að gos­órói muni halda áfram næstu árin. Heim­ildin hafði sam­band við eld­fjalla­fræð­ing­ana Þorvald og Ármann Hösk­ulds­son og spurði þá hvaða þýð­ingu nýhafið eld­gos norðan við Grinda­vík hefur á fram­tíð­ar­horf­urnar Reykja­nes­svæð­inu.

„Alveg sannfærður um að það verður gos á þessu svæði aftur“
Gos norðan við Grinda­vík Þor­valdur Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ingur segir að gos­tíma­bil­inu sé ekki lokið. Hann lítur á atburði síð­ustu daga sem hlut af lengri atburða­rás. Mynd: VIKEN KANTARCIAFP

Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði við Háskóla Íslands, segir eld­gosið, sem hófst í byrjun viku, vera atburð sem er hluti af stærri heild. Hugs­an­lega munu íbúar á Reykja­nes­svæð­inu og víðar búa við end­ur­tekin gos næstu árin.

„Og ég verð bara að segja því miður að þá held ég að þessar hrinur sem við erum búin að fá, þær eiga eftir að verða fleiri,“ segir Þor­valdur. Hann tekur þó fram að erfitt sé að segja til hversu margar hrinur verða í náinni fram­tíð eða hversu lengi þær munu vara. Hann segir nýjan veru­leika blasa við, sem ein­kenn­ist af óvissu sem sé óþægi­leg en stað­reynd sem við þurfum að lifa með. 

Í sam­tali við Heim­ild­ina, þar sem Þor­valdur var spurður um fram­tíð­ar­horfur á Reykja­nesskag­anum og mögu­leika þess að gos gæti ógnað Grinda­vík­urbæ á nýjan leik, segir Þor­valdur að hann telji það ekki lík­legt.

Hins vegar seg­ist hann vera „alveg sann­færður um það að það verður gos á þessu svæði aftur. Þá gætu Sund­hnúkar gosið aftur, það gæti nátt­úru­lega líka fært sig vestur í Eld­vörpin eða Illa­hraunið eða jafn­vel aftur upp í Fagra­dals­fjall.

Við sjáum ekki neitt sem segir okkur að þetta sé búið og gengið yfir með þessum atburðum sem hafa verið í gangi núna. Það er kannski frekar að þetta sé fimmti atburð­ur­inn í frekar löngu ferli.“

Langtímahorfur eldsumbrota

Ármann Hösk­ulds­son, pró­fessor í jarð­fræði við Háskóla Íslands, tekur undir þessar spár, en telur atburða­rás­ina munu taka lengri tíma. „Svæðið verður með svona læti í ein­hver tíu til fimmtán ár og svo færir það sig,“ segir Ármann. Þá spáir Ármann því að gos­hrin­urnar muni fær­ast út í Eldvörp. „Svo þegar það er búið þar þá færir það sig yfir á Krísu­víkur eða Blá­fjalla­kerfið,“ segir Ármann.

Spurður út í þessar spár Ármanns, tekur Þovaldur undir þær en segir þó að sú spá sé á tals­vert lengri tíma­skala. Svæðið sem er nú að ganga í gegnum til­tekið eldsum­brota­tíma­bil, sem Þor­valdur kallar Fagra­dals­fjallselda, gæti verið virkt næstu fimm ár eða svo.

Þegar litið er á sög­una, fyrri gos tíma­bila á Reykja­nesskag­anum, sem hafa varið í 300 til 400 ár, segir Þor­valdur eld­gosin hafa breiðst yfir allar gos­reinar á Reykja­nes­inu.

Gos nálægt austustu byggðum Stór- Reykjavíkursvæðisins

„Þá mun gjósa alveg örugg­lega á Eld­vörp­unum og þeirri línu. Það mun gjósa á Reykja­neslín­unni, sem eru stamp­arnir, sem eru gýg­arnir við Reykja­nes­virkj­un­ina. Það er næsta ljóst að það mun gjósa á Trölla­dyngju­rein­inni, sem er reinin sem nær frá Ögmund­ar­hraun og alveg norður undir Helga­fellið, fyrir ofan Hafna­fjörð. Svo er nátt­úru­lega Brenni­steins­reinin, hún á alveg örugg­lega eftir að taka við sér líka.“ 

Þor­valdur Þórð­ar­sonEld­fjalla­fræð­ing­ur­inn lítur á gosið sem hluta af stærri atburð sem gæti varað í fimm ár.

Það gos gæti til að mynda haft áhrif á þjóð­veg númer eitt og aust­ustu byggðir á stór Reykja­vík­ur­svæð­inu, segir Þor­valdur. Sömu­leiðis segir Þor­valdur að búast megi við gosi í Blá­fjöllum þar sem hraun myndi renna í átt að Kópavogi og Reykja­vík. 

„Hraun myndi þá renna niður Rjúpna­dyngj­urnar í átt að Þjóðvegi númer eitt og í átt að austasta hluta Kópavogs og Reykja­víkur.“
Þor­valdur Þórð­ar­son, eld­fjalla­fræð­ingur
Um hugs­an­legt eld­gos í Blá­fjöllum og áhrif þess

Þá tekur hann einnig fram að ekki sé aðeins um hraun­gos að ræða, heldur getur líka komið sprengigos og þá þarf líka að huga að gasmengun. Þá er heldur ekki hægt að segja með vissu hvenær Blá­fjöllin gosið, „það gæti verið 100 til 200 ár þess vegna, við vitum ekk­ert um það“ segir Þor­valdur.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár