Eru Rússar að vinna stríðið?

Kross­götur eru fram undan í inn­rás Rússa í Úkraínu. Stuðn­ingur fer þverr­andi á Vest­ur­löndum og hagur Rúss­lands vænkast. Mikið mann­fall og kostn­aður plagar þó ofhitn­andi hag­kerfi Rúss­lands.

Eru Rússar að vinna stríðið?
Eina vonin Volodomyr Zelensky Úkra­ínu­for­seti og sam­landar hans þurfa að treysta á að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti nái sam­komu­lagi við Repúblik­ana um áfram­hald­andi fjár- og hern­að­ar­stuðn­ing við Úkraínu and­spænis öfl­ugri and­stæð­ingi. Mynd: Mandel NGAN / AFP

Þegar sögu­bæk­urnar fjalla um okkar daga gæti verið að 2023 verði minnst sem árs­ins þegar Rússland byrj­aði að vinna stríðið í Úkraínu. Því stríði er sann­ar­lega ekki lokið enn og ýmis­legt sem gæti gerst í náinni fram­tíð sem gæti gjör­breytt stöð­unni. Þó má með sanni segja að gangur Úkraínu hafi verið afar hægur í ár í til­raunum hers lands­ins til að end­ur­heimta land­svæði sín sem Rússland hefur sölsað undir sig síðan inn­rás þeirra hófst í febr­úar 2022. 

„Skelfileg niðurstaða fyrir Úkraínu“

Jón Ormur Hall­dórs­son, doktor í alþjóða­stjórn­málum, sagði í pistli sínum fyrir Heim­ild­ina í júní á þessu ári að „frosið stríð“ af þessu tagi væri „skelfi­leg nið­ur­staða fyrir Úkraínu“. Hann segir í sam­tali við Heim­ild­ina nú að sú staða hafi ræst, „stór­sókn Úkraínu til að ná aftur land­svæðum hafi mis­tek­ist“ og að ein af stóru fréttum árs­ins í Úkraínu sé að „stríðið sner­ist þeim að mörgu leyti í óhag“. Aðal­hers­höfð­ingi …

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Þessir karlar, sem eru að berjast, þurfa að setjast að samningaborði. Það er enginn að hugsa um framtíð venjulegs fólks. Lýsingarnar minna á skákskýringar og ráðafólk Evrópu flýgur á einkaþotum á fundi sem skila engum árangri þrátt fyrir að her lögreglumanna sé vopnaður til að vera til búnir að skjóta ímyndaða óvini. Pútín telur sig vera að endurheimta landsvæði í Rússlandi sem Krútsjef gaf heimalandi sínu, Úkraínu, þegar Sovétríkin reiknuðu með að verða eilíft ríkjasamband. Grúsíumaðurinn og guðfræðingurinn Stalín flutti fólk eins búfénað milli ríkja til að búa til Sovéska þjóð. Nú er fólk drepið vegna afleiðinga af gjörðum löngudauðra karla. Engum dettur í hug að miðla málum.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það var fyrirséð í upphafi að það yrði óhagstætt fyrir Úkraníu að stríðið drægist á langinn. Það hefur nú staðið lengur en svartsýnustu menn þorðu að vona. Það mætti alls ekki dragast fram að kosningabaráttuni í USA sem það hefur nú gert. Kosningar eru líka framundan hjá ESB, líklegt að öfgvaöfl græði á stríðinu standi það enn.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist 2024?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár