Sagan af vélstjóranum í Eyjum sem gagnrýndi kvótakerfið: „Ég var talinn óalandi og óferjandi.“

Stærsta útgerðar­félagið í Vestmanna­eyjum, Ísfélagið stendur á tímamótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eignar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­verandi starfs­maður Ísfélagsins, Árni Marz Frið­geirsson, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrifaði í DV um kvóta­kerfið.

Gagnrýndi kvótakerfið og var flæmdur burt segir hann
Gagn­rýndi kvóta­kerfið og var flæmdur burt segir hann Árni Marz Frið­geirs­son var vél­stjóri hjá Ísfé­lag­inu og var rek­inn eftir að hafa gagn­rýnt kvóta­kerfið opin­ber­lega, segir hann. Hér sést Árni, íklæddur bol merktum Sós­í­alista­flokki Íslands, borða malt­brauð með osti á mynd sem bróðir hans tók. Mynd: Petur Fridgeirsson

Stærsta útgerðar­félagið í Vestmanna­eyjum, Ísfélagið, hefur um áratuga­skeið verið fyrir­ferðar- og valda­mikið í bænum og stutt Sjálfstæðis­flokkinn með ráð og dáð. Eigendur Ísfélagsins, Guðbjörg Matthíasdóttir og maður hennar heitinn, Sigurður Einarsson, voru bæði starfandi í flokknum og bæjar­fulltrúar fyrir hann. Deilur í Sjálfstæðis­flokknum árið 2018 klufu flokkinn og til varð Heimaeyjar­listinn, með Írisi Róberts­dóttur í stafni, sem tók til sín völdin í bænum. 

Sagan um þessa valda­baráttu í Eyjum er sögð í grein um Ísfélagið og Guðbjörgu Matthíasdóttur í Heimildinni. Þetta er sagan af því hvernig þetta fyrirtæki, og hitt stóra útgerðar­félagið í Eyjum sem heitir Vinnslu­stöðin, hafa í gegnum tíðina ráðið svo miklu í bænum þar sem völd í atvinnu­lífi og stjórn­málum hafa farið saman. 

Þar er einnig greint frá því hvernig Ísfélagið hefur í gegnum tíðina beitt sér í Eyjum til að halda völdum sínum og áhrifum og meðal annars sögð saga vélstjóra sem leyfði …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Fyrir 31ári síðan var ég háseti á Erling KE eigandi Saltver hf. Þorsteinn Erlingsson var eigandi og forstjóri. Við seldum fiskinn á fiskmarkaði, þess vegna var ég á þessu skipi en ekki einhverju öðru til að gera langa sögu stutta þá hringdi forstjórinn um borð í hádeginu einn daginn og tilkynnti skipstjóranum að hann ætlaði að taka 25kr af fiskmarkaðsverðinu, sem var þá 65-70kr kílóið (netafiskur) og kaupa kvóta til geta gert útá rækju um sumarið, ég sagði upp vildi ekki láta RÆNA mig, mér er ekki kunnugt um að aðrir hafi sagt upp.
    3
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ef fjölmiðlafólk færi hringinn um landið þá er þessi saga Árna sannarleg ekki einsdæmi, það eru til sögur af skipstjórum sem hafa gengið í land á besta aldri fyrir syni sína, gegn ævarandi þögn um kvótakerfið og um hvar fiskverð er í raun ákveðið, hér er ekki hægt að nefna nöfn því það hefði fyrirsjáanlegar ömurlegar afleiðingar fyrir viðkomandi, þetta er lífið í sjávarútvegi á Íslandi síðastliðin 30ár.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár