Sagan af vélstjóranum í Eyjum sem gagnrýndi kvótakerfið: „Ég var talinn óalandi og óferjandi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.

Gagnrýndi kvótakerfið og var flæmdur burt segir hann
Gagn­rýndi kvóta­kerfið og var flæmdur burt segir hann Árni Marz Frið­geirs­son var vél­stjóri hjá Ísfé­lag­inu og var rek­inn eftir að hafa gagn­rýnt kvóta­kerfið opin­ber­lega, segir hann. Hér sést Árni, íklæddur bol merktum Sós­í­alista­flokki Íslands, borða malt­brauð með osti á mynd sem bróðir hans tók. Mynd: Petur Fridgeirsson

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið, hefur um ára­tuga­skeið verið fyr­ir­ferðar- og valda­mikið í bænum og stutt Sjálf­stæð­is­flokk­inn með ráð og dáð. Eigendur Ísfé­lags­ins, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og maður hennar heit­inn, Sigurður Ein­ars­son, voru bæði starf­andi í flokknum og bæj­ar­full­trúar fyrir hann. Deilur í Sjálf­stæð­is­flokknum árið 2018 klufu flokk­inn og til varð Heima­eyj­ar­list­inn, með Írisi Róberts­dóttur í stafni, sem tók til sín völdin í bænum. 

Sagan um þessa valda­bar­áttu í Eyjum er sögð í grein um Ísfé­lagið og Guð­björgu Matth­í­as­dóttur í Heim­ild­inni. Þetta er sagan af því hvernig þetta fyr­ir­tæki, og hitt stóra útgerð­ar­fé­lagið í Eyjum sem heitir Vinnslu­stöðin, hafa í gegnum tíð­ina ráðið svo miklu í bænum þar sem völd í atvinnu­lífi og stjórn­málum hafa farið saman. 

Þar er einnig greint frá því hvernig Ísfé­lagið hefur í gegnum tíð­ina beitt sér …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Fyrir 31ári síðan var ég háseti á Erling KE eigandi Saltver hf. Þorsteinn Erlingsson var eigandi og forstjóri. Við seldum fiskinn á fiskmarkaði, þess vegna var ég á þessu skipi en ekki einhverju öðru til að gera langa sögu stutta þá hringdi forstjórinn um borð í hádeginu einn daginn og tilkynnti skipstjóranum að hann ætlaði að taka 25kr af fiskmarkaðsverðinu, sem var þá 65-70kr kílóið (netafiskur) og kaupa kvóta til geta gert útá rækju um sumarið, ég sagði upp vildi ekki láta RÆNA mig, mér er ekki kunnugt um að aðrir hafi sagt upp.
    3
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ef fjölmiðlafólk færi hringinn um landið þá er þessi saga Árna sannarleg ekki einsdæmi, það eru til sögur af skipstjórum sem hafa gengið í land á besta aldri fyrir syni sína, gegn ævarandi þögn um kvótakerfið og um hvar fiskverð er í raun ákveðið, hér er ekki hægt að nefna nöfn því það hefði fyrirsjáanlegar ömurlegar afleiðingar fyrir viðkomandi, þetta er lífið í sjávarútvegi á Íslandi síðastliðin 30ár.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár