Þingmenn ríkistjórnarflokkanna vilja „fara hægar í sakirnar“ í gjaldtöku á laxeldi

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar leggur til nærri helm­ingi lægri gjald­töku á lax­eld­is­fyr­ir­tæki vegna fjár­laga næsta árs en gert hefur ráð fyrir í laga­frum­varpi.

Þingmenn ríkistjórnarflokkanna vilja „fara hægar í sakirnar“ í gjaldtöku á laxeldi
Mæla með lægra fisk­eld­is­gjaldi Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem Teitur Björn Ein­ars­son er for­maður yfir, vill fara hægar í sak­irnar gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tæjum og mæla með lægri gjald­töku en kveðið er á um í frum­varpi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra vegna fjár­laga næsta árs. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis leggur til að gjald­taka á sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin verði lækkuð um nærri helm­ing miðað við fyr­ir­liggj­andi laga­frum­varp vegna fjár­laga næsta árs. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti frá þing­mönnum meiri­hluta nefnd­ar­innar sem allir eru í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum.

Telja þing­menn­irnir að fara þurfi „hægar í sak­irnar“ í gjald­töku á sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin en gert er ráð fyrir í frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin á Íslandi, Arnarlax, Arctic Fish, Fiskeldi Aust­fjarða og Háafell eru í eigu norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja að stóru leyti. Arnarlax er í meiri­hluta­eigu Salmar, sem er eitt stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Noregs; Arctic Fish er í meiri­hluta­eigu Mowi sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi og Fiskeldi Aust­fjarða er í eigu Måsoval að hluta. Háafell á Ísafirði er aftur á móti alfarið í eigu útgerð­ar­innar Hrað­frysti­húss­ins-Gunn­varar. Þá eru íslensku útgerð­irnar Síld­ar­vinnslan, …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Mér skilst að þetta gjald sé miklu hærra í öðrum löndum eins og Noregi eða Færeyjum. Meirihlutinn þarf að útskýra hvers vegna. Annars vakna upp grunsemdir um að hér sé maðkur í mysunni.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Laxeldisfyrirtækin borga ekkert fyrir afnot á einu né neinu á Íslandi . Laxeldisfyrirtækin borga bara í vasa sjálfstæðismanna , sem hafa farið fyrir áróðri laxeldis í sjó fyrir vestan. Hluti af vegakerfi vestur til laxeldisfyrirtækjana er ónýtur , vegna þungaflutninga til og frá laxeldisfyrirtækjunum. Hvers vegna heyrist ekkert frá neinum vegna þessa ? Kristján Már Unnarsson á Stöð 2 mætti gera eina frétt um raunveruleikan um fiskeldið ?
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það hefur rignt SMS yfir nefndarmenn efnahags og viðskiptarnefndar og þeir áminntir um að vinna fyrir sérstökum launum sínum og framtíðarstarfi, SMS eru send úr símum SFS-samtakanna. Meirihluti nefndarinnar kiknar undan álaginu líkt og óharðnaðir unglingar, þess vegna er tillaga komin fram um 50% lækkun auðlindargjalda á sjókvíaeldi = hagsmunir fyrirtækjanna sett framfyrir hagsmuni náttúrunnar.
    1
  • GT
    Geir Thorolfsson skrifaði
    Velti fyrir mér rökum fyrir þessu nefndaráliti. Sé engin í þessari grein. 5% af 4,8 evrum á kíló er ekki nema skitnar 36 krónur á kílóið. Mér finnst 50 kall algjört lágmark,
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár