Fyrir 100 árum voru jarðarbúar 2 milljarðar. Voru Evrópubúar, er þar átt við vestari hlutann, 500 milljónir. 25% jarðarbúa. Verulegur hluti.
Staðan og horfur nú?
Nú eru þessar tölur 8 milljarðar jarðarbúa, en Evrópubúum hefur ekki fjölgað. Eru enn 500 milljónir. Hlutfall er því komið niður í 6-7%.
Um næstu aldamót er talið, að jarðarbúar verði komnir í 11-12 milljarða, en ekki er búizt við að Evrópubúum fjölgi. Þeir verða því aðeins 4% jarðarbúa um næstu aldamót.
Miðstöð mannréttinda, velferðar og öryggis
Á sama tíma er Evrópa miðstöð lýðræðis, baráttunnar gegn spillingu, mannréttinda, virðingar við jörðina, velferðar og öryggis. Er ljóst, að margur maðurinn í Asíu, Afríku eða S-Ameríku muni renna hýru auga til Evrópu og þeirrar velferðar, frelsis og þess öryggis, sem hér má finna, á komandi áratugum.
Þessi staða er nú þegar komin upp í formi flóttamanna frá Miðausturlöndum, Asíu og Afríku, svo að ekki sé talað um Úkraínumenn, sem reyndar eru að flýja innan Evrópu, en vilja ekkert frekar, en verða hluti af hinni eiginlegu Evrópu, Evrópusambandinu, ESB.
Enn eru þetta mest einstaklingar, sem eru að flýja stríðshörmungar, atvinnuleysi, fátækt, kúgun, vonleysi og ófrelsi. Ekki öflug lið eða skipulegar fylkingar trúarhópa eða árásargjarnra þjóða eða kynþátta.
Hvað kennir mannkynssagan okkur?
Mannkynssagan einkennist af baráttu um auðæfi, land og kosti þess, völd og trúarbrögð. Þrátt fyrir viðleitni til samskipta og samstarfs á grundvelli skilnings og samhjálpar, er hætt við, að mannkynssagan muni endurtaka sig.
Eitt er sjálfsbjargarhvöt manna og endalaus leit að betra lífi, annað er valda- og yfirráðasókn valdagráðugra þjóðarleiðtoga og ofstækisfullra trúarleiðtoga í heimi minnkandi auðlinda og dvínandi lífsgæða.
Höldum vöku okkar fyrir börnin okkar
Það væri ótrúleg grunnhyggja, ef við, Evrópubúar, héldum, að við gætum setið að mannréttindum okkar, allsnægtum og öryggi, í ró og friði, meðan aðrir hlutar mannkyns svelta, líða og þjást, og, að þeir, sem eiga undir högg að sækja, muni einfaldlega nema staðar við línu á landakortinu.
Hvernig mætti uppskipting og ágreiningur vera til góðs?
Til eru þeir menn, sem virðast halda, að Evrópa sé bezt komin í uppskiptingu og ágreiningi. Það er hryggilegt, að jafnvel íslenzkir forystumenn, margur maðurinn í D og B, svo að ekki sé talað um M, skuli, vegna þjóðerniskenndar sinnar og skammsýni, músarholusjónarmiða, aðhyllast og beinlínis styðja þessi sjónarmið og tilraunir til niðurrifs og uppskiptingar, veikingar, eyðileggingar Evrópu.
Því miður eru Brexit-menn víða, líka hér, og þarf ekki að fara langt til að finna þá.
Ótrúlegir heimskingjar og blindingjar það!
Sterk Evrópa og aðgerðarplan til hjálpar eina leiðin!
Til að tryggja hagsmuni og öryggi Evrópu, þarf þetta til að koma:
-
Skilningur á þessari stöðu og þeirri hættu, sem fram undan leynist.
-
Fullkomin samstaða og bezta möguleg samvinna allra þjóða og afla innan Evrópu, Evrópusambandsins, Ísland auðvitað meðtalið.
-
Evrópa þarf að fara af stað með öfluga áætlun og aðgerðaplan til að styrkja og byggja upp fátækar þjóðir heims, einkum í Afríku og Asíu, og hjálpa þeim þannig til sjálfsbjargar.
Vettvangur fyrir þetta lífsnauðsynlega samstarf og aðgerðir er vitaskuld Evrópusambandið, ESB, sem, Guði sé lof, er komið vel á veg með að friða, sameina og styrkja Evrópu, viðskiptalega og efnahagslega, og sér þörfina nú á hernaðarlegri styrkingu og sjálfstæði.
NATO fínt, en veitir ekki framtíðaröryggi
Menn hafa í sambandi við öryggi Evrópu talið, að NATO myndi tryggja hagsmuni hennar og varnir, en, því miður hafa Evrópubúar treyst um of á hernaðarmátt Bandaríkjanna í NATO og þar með vanrækt sjálfstæðar varnir sínar og hernaðarmátt Evrópu sjálfar.
Úr þessu er nú loks verið að bæta, svo kaldhæðnislegt, sem það er, þökk sé Pútín.
Broguð stríðsganga Bandaríkjamanna
Sagan sýnir, að Bandaríkin hafa engan raunverulegan sigurmátt, yfir höfin, á erlendri grund, þegar á reynir: Illa vopnaður bændaher rak þá út úr Víetnam, nánast eins og halaklippta hunda, þrátt fyrir þeirra grimmilega stríðsrekstur þar og gjöreyðingarvopn.
Ekki gekk vel í Kóreu heldur, og ekki var árangurinn miklu skárri í Afganistan, Írak eða Mið-Austurlöndum-nær.
Gjöreyðingarvopn hafa fælingarmátt, en stríð vinnast ekki með þeim - með þeim tapa allir - stríð vinnast aðeins, ef yfir höfuð er hægt að tala um vinning og sigur í stríði, með hefðbundnum hernaði.
Endurkoma „Trumps“ óhjákvæmileg
Erfitt verður mikið að treysta á þá klofnu þjóð, sem Bandaríkjamenn eru, eftir að hún kaus sér Donald Trump sem forseta, en hann, eða annar hans líka, óútreiknanlegur sýndarmennskupési, hrokagikkur og óheilindamaður, með America-First-stefnu, mun örugglega komast þar aftur til valda. - Vei Evrópu þá, ef á reynir og hún getur ekki varið sig sjálf.
Okkar hlutur, Íslendinga, er, að ganga heilshugar og að fullu inn í ESB og Evrópusamstarfið og leggja þar til þau gæði, sem landið og þjóðin býr yfir, til tryggingar álfunni og þjóðabandalagi hennar.
Kronan er onyt með ollu Það kom Gerlega i ljos hja RUV i KVEIKI þar kom i ljos Nyðingskapur sem Vaxtastefna Island legst illa a Heimilin i Landinu. Ole er þekktur fyrir skrif sin um Velferð DYRA og megi hann hafa þökk fyrir sinn GOÐA MALSTAÐ þar.