Stjórnarmaður í HSÍ hættir út af Arnarlaxmálinu: „Verð að vera samkvæmur sjálfum mér“

Davíð Lúther Sig­urðs­son, stjórn­ar­maður í HSÍ, sagði af sér stjórn­ar­mennsku vegna styrkt­ar­samn­ings við Arnarlax. Hann var yfir mark­aðs- og kynn­ing­ar­málum en fékk ekki að vita af samn­ingum við Arnarlax fyrr en greint var frá honum í fjöl­miðlum.

Stjórnarmaður í HSÍ hættir út af Arnarlaxmálinu: „Verð að vera samkvæmur sjálfum mér“
Segist vera lax­veiði­maður og styrkt­ar­að­ili IWF Davíð Lúther Sig­urð­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í HSÍ, seg­ist vera lax­veiði­maður og styrkt­ar­að­ili nátt­úru­vernd­ar­sam­taka sem berj­ast gegn sjó­kvía­eld­inu. Hann sést hér með lax í Elliða­ánum.

Davíð Lúther Sig­urðs­son, stjórn­ar­maður í Hand­knatt­leiks­sam­bandi Íslands (HSÍ), sagði af sér í stjórn­inni í fyrra­dag eftir að hann frétti af því að sam­bandið ætl­aði sér í sam­starf með sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. Þetta stað­festir Davíð í sam­tali við Heim­ild­ina. Blaðið fékk upp­lýs­ingar um að búið væri að fjar­lægja nafn Davíðs Lúthers af list­anum yfir stjórn­ar­menn á heima­síðu HSÍ og hringdi þess vegna í hann.

Styrkt­ar­samn­ingur Arnarlax og HSÍ hefur vakið mikla athygli og sagði Guð­mundur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­þjálf­ari Íslands, meðal ann­ars að hann væri „hneyksli“ og tón­listar- og lax­veiði­mað­ur­inn Bubbi Morthens sagði að lands­liðið, sem oft er talað um sem „strák­ana okkar“, væri nú „strák­arnir þeirra“ og vísað til Arnarlax. 

Í sam­starf­inu felst meðal ann­ars að Arnarlax verður með aug­lýs­ingu á lands­liðs­bún­ingum Íslands, líkt og fram kemur á heima­síðu HSÍ: „HSÍ og Arnarlax hafa und­ir­ritað sam­komu­lag þess efnis að Arnarlax verði einn af bak­hjörlum HSÍ. Frá og með HM kvenna sem hefst í næstu viku í Noregi, Svíþjóð og Danmörku mun Arnarlax hafa sitt vöru­merki á baki allra keppn­is­treyja lands­liða Íslands í hand­bolta.“

Sjó­vkvía­eldi er umdeilt á Íslandi, meðal ann­ars vegna umhverf­isslysa sem hafa komið upp á liðnum mán­uðum. Þetta eru slysa­slepp­ing hjá Arctic Fish og lúsafar­aldur sem kom hjá sama fyr­ir­tæki sem og Arn­ar­laxi. Samkvæmt könnun sem birt var í vik­unni eru nú helm­ingi fleiri Íslend­ingar á móti lax­eldi í sjó­kvíum en fyrir tveimur árum. 

„Vil hér til­kynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dags­ins.“
Davíð Lúther Sig­urðs­son

Frétti af málinu í fjölmiðlum

Davíð Lúther segir að hann hafi hætt vegna þess að honum hafi gramist að vera ekki lát­inn vita að HSÍ ætl­aði sér að þiggja pen­inga frá Arn­ar­laxi. Hann segir að þetta hafi verið ákveðið á fundi þann 6. nóv­em­ber sem hann komst ekki á. „Ég hætti um leið og ég frétti að það hefði verið ákveðið að semja við Arnarlax,“ segir hann í sam­tali við Heim­ild­ina. Davíð var auk þess yfir mark­aðs- og kynn­ing­ar­málum í stjórn­inni en fékk samt ekki að vita um eða eiga aðkomu að samn­ingnum við Arnarlax. 

Davíð segir að hann sé lax­veiði­maður og að hann styðji nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Icelandic Wildlife Fund en þau hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn lax­eldi í sjó­kvíum. Í tölvu­pósti sem Davíð sendi til for­manns HSÍ, Guð­mundar B. Ólafs­sonar, og fram­kvæmda­stjór­ans Róberts Geirs Gísla­sonar, sagð­ist hann ekki geta setið áfram í stjórn­inni sam­visku sinnar vegna. „Vil hér til­kynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dags­ins. [...] Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera sam­kvæmur sjàlfum mér, mót­mæli àfram lax­eldi í sjó og styð og styrki IWF.“ Tölvu­póst­ur­inn er birtur í heild sinni með frétt­inni. 

Ekki náð­ist í Guðmund B. Ólafsson, for­mann HSÍ, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Tölvupóstur Davíðs Lúthers til formanns HSÍ

„Sælir báðir

Vil hér til­kynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dags­ins. 

Vont var að heyra þetta í gegnum Messen­ger og í sím­tölum frá fólki sem ég bæði þekki og þekki ekki neitt.

Róbert sagði mér að þetta hafi verið sam­þykkt þann 6.nóv­em­ber á fundi sem ég komst ekki á. Ég las fund­ar­gerð­ina sama dag og eina sem stóð var d. Styrkt­ar­að­ilar RG kynnti stöðu styrkt­ar­að­ila.

Ég á erfitt með að trúa því að það hafi ekki verið rök­ræður á þessum fundi vegna þessa máls og bjóst ég því við að þegar eld­fim mál koma upp að hringt er í stjórn­ar­mann sem er for­maður mark­aðs og kynn­ing­ar­mála ef hann kemst ekki á fund til að bera undir eða jafn­vel að segja að minnsta kosti frá því að þetta hafi verið sam­þykkt þar sem þetta klár­lega fellur undir mark­aðs og kynn­ing­ar­mál. Ég hefði þá getað sagt mig úr stjórn þann 6.nóv­em­ber. Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera sam­kvæmur sjàlfum mér, mót­mæli àfram lax­eldi í sjó og styð og styrki IWF.  

Það má taka mig út af vefnum svo hætt verði að hafa sam­band við mig útaf þessu máli.  Gangi ykkur sem allra best og áfram hand­bolti. 

Bestu kveðjur Davíð Lúther“

Sælir báðir Vil hér til­kynna ykkur að ég ætla að hætta í stjórn HSÍ eftir fréttir dags­ins.  Vont var að heyra þetta í gegnum Messen­ger og í sím­tölum frá fólki sem ég bæði þekki og þekki ekki neitt. Róbert sagði mér að þetta hafi verið sam­þykkt þann 6.nóv­em­ber á fundi sem ég komst ekki á. Ég las fund­ar­gerð­ina sama dag og eina sem stóð var  d. Styrkt­ar­að­ilar RG kynnti stöðu styrkt­ar­að­ila Ég á erfitt með að trúa því að það hafi ekki verið rök­ræður á þessum fundi vegna þessa máls og bjóst ég því við að þegar eld­fim mál koma upp að hringt er í stjórn­ar­mann sem er for­maður mark­aðs og kynn­ing­ar­mála ef hann kemst ekki á fund til að bera undir eða jafn­vel að segja að minnsta kosti frá því að þetta hafi verið sam­þykkt þar sem þetta klár­lega fellur undir mark­aðs og kynn­ing­ar­mál. Ég hefði þá getað sagt mig úr stjórn þann 6.nóv­em­ber. Eins og ég sagði við Róbert áðan þá verð ég að vera sam­kvæmur sjàlfum mér, mót­mæli àfram lax­eldi í sjó og styð og styrki IWF.   Það má taka mig út af vefnum svo hætt verði að hafa sam­band við mig útaf þessu máli.  Gangi ykkur sem allra best og áfram hand­bolti.  Bestu kveðjur Davíð Lúther
Sent 3m ago
Ent
Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár