Settu brjóstapúða í 600, fjarlægðu úr 300

Á tíu árum hafa læknar Land­spítala grætt brjósta­púða í 606 einstaklinga og fjarlægt þá úr 313. „Annaðhvort er spítalinn að fjarlægja helming þeirra púða sem hann græðir, eða einka­rekna heilbrigðis­kerfið veltir þessum afleiðingum yfir á hið opinbera,“ segir þingmaður Pírata.

Landspítali
Land­spít­ali Ígræðsla brjóstapúða á Land­spít­ala er oft­ast fram­kvæmd vegna upp­bygg­ingar brjósts eða brjósta eftir krabba­meins­með­ferð.

Engar upplýsingar eru til um fjölda einstaklinga sem hafa fengið grædda í sig brjósta­púða á einka­stofum. Aftur á móti eru þær upplýsingar til um Land­spítala sem hefur á síðastliðnum 10 árum grætt brjósta­púða í 606 einstaklinga og fjarlægt þá úr 313. 

„Annaðhvort er spítalinn að fjarlægja helming þeirra púða sem hann græðir, eða einka­rekna heilbrigðis­kerfið veltir þessum afleiðingum yfir á hið opinbera,“ segir Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, við Heimildina.

Tölurnar sem um ræðir birtust í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðis­ráðherra við fyrir­spurn Andrésar Inga um skráningu brjósta­púða. 

Veikindi rakin til púðanna

Konur með slíka púða hafa sumar hverjar lent í alvarlegum veikindum sem þær telja tengjast brjósta­púðunum, sérstak­lega þar sem verulega dró úr einkennunum eftir að þær létu fjarlægja púðana. 

Heimildin fjallaði um veikindi þriggja kvenna, svokallaða brjóstapúða­veiki, í ágúst­mánuði. Konurnar höfðu allar orðið óvinnufærar, ýmist tíma­bundið eða til frambúðar, vegna veikinda …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brjóstapúðaveiki

ViðtalBrjóstapúðaveiki

Upplýsa ætti konur á leið í brjósta­stækkun um möguleg veikindi

Nokkur fjöldi kvenna lætur fjarlægja brjósta­púða árlega vegna veikinda sem talin eru tengjast þeim. Ekki er hægt að segja með vissu hversu margar þær eru því lýta­læknar hafa, á grund­velli persónu­verndar­sjónarmiða og trúnaðar, neitað að veita landlækni upplýsingar sem gætu leitt það í ljós. Frumvarp sem á að styrkja heimild land­læknis til þess að krefjast upplýs­ing­anna á að fara fyrir haustþing.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Bumbu­boltakarlar sleppa með skrekkinn en ekki brjóstapúða­konur

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segir fáránlegt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostnaði við að láta fjarlægja brjósta­púða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikjast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjarlægja brjósta­púða kostar mörg hundruð þúsund krónur og er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arnbjörns­dóttir ljósmóðir gekkst undir ristilnám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púðana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veikindi frá árinu 2008. Nú hafa púðarnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný segist hafa öðlast nýtt líf.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvarleg veikindi til brjósta­púða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púðarnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hundruð þúsund krónur, er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands. Ónæmis­fræðingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörðunar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauðar­heilkenni og féll í dá í fjórar vikur síðasta sumar. Undanfari veikindanna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veikinda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjarlægja þá. Sjúkra­tryggingar Íslands niður­greiða ekki aðgerðina. Hún kostar mörg hundruð þúsund.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár