Bumbuboltakarlar sleppa með skrekkinn en ekki brjóstapúðakonur

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, segir fárán­legt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostn­aði við að láta fjar­lægja brjóstapúða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikj­ast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjar­lægja brjóstapúða kostar mörg hund­ruð þús­und krónur og er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.

Þingmaður
Þing­maður „Miðaldra körlum sem fót­brotna í bumbu­bolta er ekki refsað fyrir það með því að þurfa að bera kostn­að­inn sjálfir. Af hverju ætti annað að gilda um konur sem veikj­ast, þó að það sé út af ein­hverju sem þær völdu sjálfar að gera?” spyr Andrés Ingi. Mynd: Davíð Þór

Þing­maður Pírata telur að konur með brjóstapúða­veiki ættu að fá aðgerð til þess að fjar­lægja púð­ana nið­ur­greidda af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Hann segir að þó að brjósta­stækkun sé val­kvæð aðgerð þá sé ekki hægt að tala um aðgerð til þess að fjar­lægja púða sem eru að valda veik­indum sem val­kvæða. 

Heim­ildin fjall­aði í síð­asta tölu­blaði um brjóstapúða­veiki, veik­indi sem brjót­ast út með ólíkum hætti en geta orðið mjög alvar­leg. Brjóstapúða­veiki ein­kenn­ist oft af þreytu, skertu úthaldi, heila­þoku og lið­verkjum.

Erlendar rann­sóknir benda til þess að þrjú til fimm pró­sent þeirra sem fá sér brjóstapúða fái sömu­leiðis brjóstapúða­veiki en sumar rann­sóknir segja að hlut­fallið sé hærra, allt að 10%.

Þrjár konur sem rekja veik­indi sín til brjóstapúða og Heim­ildin ræddi við höfðu ekki efni á að fara í aðgerð­ina. Tvær …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Um brjóst kvenna gildir viðhorfið “valkvæð fegrunaraðgerð”. Konur sem þjást af langvarandi verkjum vegna þungra brjósta fá brjóstaminnkun ekki niðurgreidda og fara aftast á biðlista hjá Landsspítslanum. Þær þurfa að greiða fyrir aðgerð og uppbyggingu. Skiptir ekki máli hvort brjóstastærð er erfðir, vegna brjóstagjafar og meðgöngu eða vegna offitu. Niðurgreitt ef mjólkurkirtlar sem fjarlægðir eru vegi a.m.k. 500 gr. í hvoru brjósti. Ekki er tekið tillit til þyngdar húðar sem vegur þyngra en kirtlarnir. Hrykkskekja og slit í hrygg er ekki heilsufarsvsndamál ef manneskja er kona.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Bera læknar enga ábyrgð á gölluðum brjóstapúðum eða misheppnuðum aðgerðum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brjóstapúðaveiki

ViðtalBrjóstapúðaveiki

Upplýsa ætti konur á leið í brjósta­stækkun um mögu­leg veik­indi

Nokkur fjöldi kvenna lætur fjar­lægja brjóstapúða árlega vegna veik­inda sem talin eru tengj­ast þeim. Ekki er hægt að segja með vissu hversu margar þær eru því lýta­læknar hafa, á grund­velli per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða og trún­aðar, neitað að veita land­lækni upp­lýs­ingar sem gætu leitt það í ljós. Frumvarp sem á að styrkja heim­ild land­læknis til þess að krefj­ast upp­lýs­ing­anna á að fara fyrir haust­þing.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arn­björns­dóttir ljós­móðir gekkst undir ristil­nám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púð­ana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veik­indi frá árinu 2008. Nú hafa púð­arnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný seg­ist hafa öðl­ast nýtt líf.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvar­leg veik­indi til brjóstapúða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púð­arnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hund­ruð þús­und krónur, er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Ónæm­is­fræð­ingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörð­unar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauð­ar­heil­kenni og féll í dá í fjórar vikur síð­asta sumar. Und­an­fari veik­ind­anna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veik­inda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjar­lægja þá. Sjúkra­trygg­ingar Íslands nið­ur­greiða ekki aðgerð­ina. Hún kostar mörg hund­ruð þús­und.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár