Nýtt líf eftir að 500 millilítra sílíkonpúðar voru fjarlægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arn­björns­dóttir ljós­móðir gekkst undir ristil­nám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púð­ana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veik­indi frá árinu 2008. Nú hafa púð­arnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný seg­ist hafa öðl­ast nýtt líf.

Fundin
Fundin „Mér finnst ég vera farin að finna sjálfa mig. Ég er orðin ég,“ segir Klara Jenný um lífið eftir að púð­arnir voru fjar­lægðir. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er á leið í leg­nám í fyrra­málið,“ sagði Klara Jenný H. Arn­björns­dóttir ljós­móðir, þar sem við sátum gegnt hvor annarri í upp­töku­veri Heim­ild­ar­innar í síð­ustu viku. Það var létt yfir henni. Þetta var svona léttir sem aðeins þau öðl­ast sem hafa borið eitt­hvað þungt með sér árum saman og losnað við það. Nýtt líf, kallar hún til­veru sína eftir að hún losn­aði við þung­ann: Tvo 500 milli­lítra síli­kon­púða sem græddir voru í brjóst hennar.

Nú er leg Klöru líka á bak og burt. Frumu­breyt­ingar greindust í leg­hálsi hennar árið 2021. Eftir að hafa upp­lifað veru­legt heilsu­leysi árum saman – sem fór af stað eftir að hún fékk sér síli­kon­púða – ákvað Klara að það væri ekki áhætt­unnar virði að halda sig við legið. 

„Ég er búin að fara í stans­lausar sjúkra­hús­ferðir, aðgerðir og svæf­ingar síðan 2008 og ég fæ púð­ana 2006,“ segir Klara. „Ég er ekki til­búin …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brjóstapúðaveiki

ViðtalBrjóstapúðaveiki

Upplýsa ætti konur á leið í brjósta­stækkun um mögu­leg veik­indi

Nokkur fjöldi kvenna lætur fjar­lægja brjóstapúða árlega vegna veik­inda sem talin eru tengj­ast þeim. Ekki er hægt að segja með vissu hversu margar þær eru því lýta­læknar hafa, á grund­velli per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða og trún­aðar, neitað að veita land­lækni upp­lýs­ingar sem gætu leitt það í ljós. Frumvarp sem á að styrkja heim­ild land­læknis til þess að krefj­ast upp­lýs­ing­anna á að fara fyrir haust­þing.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Bumbu­bolta­karlar sleppa með skrekk­inn en ekki brjóstapúða­konur

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, segir fárán­legt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostn­aði við að láta fjar­lægja brjóstapúða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikj­ast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjar­lægja brjóstapúða kostar mörg hund­ruð þús­und krónur og er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvar­leg veik­indi til brjóstapúða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púð­arnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hund­ruð þús­und krónur, er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Ónæm­is­fræð­ingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörð­unar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauð­ar­heil­kenni og féll í dá í fjórar vikur síð­asta sumar. Und­an­fari veik­ind­anna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veik­inda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjar­lægja þá. Sjúkra­trygg­ingar Íslands nið­ur­greiða ekki aðgerð­ina. Hún kostar mörg hund­ruð þús­und.

Mest lesið undanfarið ár