„Ég er ekki slasaður, ég er uppfærður!“

Talið er að um 25 þús­und manns hafi misst útlim í stríð­inu í Úkraínu frá því að það hófst í febr­úar 2022. Það gera um 40 ein­stak­lingar á dag að með­al­tali. Óskar Hall­gríms­son heim­sótti Unbroken Center, mið­stöð sem byggð var við rík­is­sjúkra­húsið í Lviv þar sem boðið er upp á með­ferð fyrir þennan hóp.

„Ég er ekki slasaður, ég er uppfærður!“

Það er ómögu­legt að gera skil á hversu margir hafa slasast í stríð­inu í Úkraínu. Stór hluti þjóð­ar­innar er enn undir her­setu Rússa og óljóst hver staðan er á heil­brigð­is­þjón­ustu her­teknu svæð­anna.

Ef fólk hefur bol­magn til að leita sér hjálpar þá er það oft til minni sjúkra­húsa eða heilsu­gæsla víðs vegar um landið og eng­inn mið­lægur gagna­grunnur er til um þá sem leita sér heil­brigð­is­þjón­ustu. Þó er óhætt að álykta að tala slas­aðra, bæði á meðal her­manna og óbreyttra borg­ara, telji á hund­ruð þús­unda.

Frá upp­hafi inn­rásar Rússa 2022 hefur Lviv verið mið­stöð fyrir mann­úð­ar­störf í land­inu. Borgin hefur tekið á móti meira en fimm millj­ónum Úkra­ínu­manna sem yfir­gáfu heim­ili sín til að flýja stríðið. Til að svara auknum straumi flótta­fólks, sem strax var farið að setja mik­inn þrýst­ing á heil­brigð­is­kerfið í borg­inni, var ákveðið að reist yrði sér­stök mið­stöð fyrir ein­stak­linga sem hafa slasast í stríð­inu. Úr því …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár