Unnið að frumvarpi sem á að „tryggja laun í rýmingu til tiltekins tíma“

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra vinnur að gerð frum­varps sem tryggir laun fólks sem starfar á svæði sem þurft hefur að rýma. For­sæt­is­ráð­herra kallar eftir því að fyr­ir­tæki leggi sitt af mörkum en að það muni svo sann­ar­lega ekki standa á stjórn­völdum að tryggja afkomu Grind­vík­inga sem hún telur „vera algjört for­gangs­mál til næstu mán­aða“.

Unnið að frumvarpi sem á að „tryggja laun í rýmingu til tiltekins tíma“
For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obbs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kallar eftir því að fyr­ir­tæki leggi sitt af mörkum til að tryggja laun Grind­vík­inga á meðan rým­ing varir en að það muni svo sann­ar­lega ekki standa á stjórn­völdum að tryggja afkomu Grind­vík­inga sem hún telur „vera algjört for­gangs­mál til næstu mán­aða“. Mynd: Golli

Vinna stendur nú yfir undir for­ystu félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra með fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti í sam­ráði við verka­lýðs­hreyf­ing­una og Samtök atvinnu­lífs­ins til þess að unnt sé að tryggja laun í rým­ingu til til­tek­ins tíma. 

Frá þessu greindi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í upp­hafi þing­fundar þegar hún svar­aði fyr­ir­spurn Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um hvað for­sæt­is­ráð­herra hygð­ist gera til að tryggja lífs­af­komu fólks í Grinda­vík sem hefur þurft að flýja heim­ili sín vegna mögu­legs eld­goss. 

„Það er ekki ein­ungis að full­komin óvissa sé um hversu lengi óvissa mun vara og hvað nákvæm­lega mun ger­ast undir yfir­borð­inu á Reykja­nesskaga, heldur er líka hús­næði fólks veru­lega skemmt, bæði innbú og hús­næðið sjálft og í þriðja lagi eru ansi margir Grind­vík­ingar sem ekki hafa getað mætt til vinnu og það er alveg ljóst að afkoma þessa fólks hlýtur að vera for­gangs­mál,“ sagði Katrín, sem hyggst nýta ýmsar leiðir sem stjórn­völd beittu á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. „Sem betur fer eigum við ýmis dæmi í okkar verk­færakistu,“ sagði Katrín og nefndi sem dæmi hluta­bóta­leið­ina og launa­greiðslur í sótt­kví. 

Í gær fund­aði hún ásamt Guðmundi Inga Guð­brands­syni, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, með for­ystu­fólki ASÍ, VR, Verka­lýðs­fé­lagi Grinda­víkur og Samtökum atvinnu­lífs­ins.

„Það er mjög mik­il­vægt að þetta sé sam­eig­in­legt verk­efni atvinnu­rek­enda og stjórn­valda og það skiptir máli að fyr­ir­tækin sem eru þess megnug leggi sitt af mörkum til að tryggja afkomu fólks­ins en það mun svo sann­ar­lega ekki standa á stjórn­völdum að tryggja þessa afkomu sem ég tel vera algjört for­gangs­mál til næstu mán­aða,“ sagði Katrín.

Kristrún sagði það ánægju­legt að ráð­ast eigi í þetta verk­efni strax og fagn­aði því að nýta eigi leiðir sem áður hafa verið farnar en spurði hversu hratt verði hægt að vinna frum­varpið. 

„Það er unnið að frum­varpi. Það er í raun og veru búið að nýta tím­ann til að fara yfir þau úrræði sem við þekkjum frá fyrri tímum og hvað sé best að nýta sem fyr­ir­mynd að ein­hvers konar úrræði fyrir þau sem ekki geta mætt til vinnu í Grinda­vík núna,“ svar­aði Katrín sem á von á frum­varps­drögum á allra næstu dögum. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár