Ást á lífrænu sorpi varð að hringrásarlausn

Björk Brynjars­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Meltu, elskar líf­rænt sorp. Hún ætl­ast ekki til að öll geri það en hún, ásamt Juliu Miriam Brenner, hafa skapað hringrás­ar­lausn fyrir dreif­býl sveit­ar­fé­lög með því að brugga nær­ing­ar­ríka meltu úr líf­rænum heim­il­is­úr­gangi.

Melta
Melta Björk Brynjars­dóttir og Julia Miriam Brenner hafa skapað hringrás­ar­lausn fyrir dreif­býl sveit­ar­fé­lög með því að brugga nær­ing­ar­ríka meltu úr líf­rænum heim­il­is­úr­gangi. Mynd: Hrefna Björg

Melta er heild­stætt flokk­un­ar­kerfi sem hefst hjá íbúum sem jarð­gera líf­rænan úrgang með jap­anskri aðferð, bokashi, þar sem úrgang­ur­inn er gerjaður við loft­firrðar aðstæður og lýkur þegar nær­ing­unni er skilað í mold­ina í formi áburðar. Julia Miriam Brenner og Björk Brynjars­dóttir standa á bak við Meltu. 

„Ég var í námi í Danmörku og flutti heim 2018 og hafði kynnst þess­ari gerj­un­ar­að­ferð, bokashi, og fylgd­ist með tveimur vin­konum mínum sem voru að sjá hvort þær gætu aðlagað þessa aðferð fyrir sveit­ar­fé­lög,“ segir Björk, sem heill­að­ist af bokashi og gat ekki slitið sig frá þeirri hugsun að gera eitt­hvað meira með hana. „Þetta er svo sniðug aðferð og það er svo frá­bært við Ísland hvað það er auð­velt að „starta“ hlutum, fólk er áhuga­samt og það vill leggja sitt af mörkum.“

Björk og Julia hófu veg­ferð Meltu með því að flytja inn bokashi-tunnur til heima­jarð­gerðar og héldu nám­skeið fyrir áhuga­sama. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TF
    Tryggvi Felixson skrifaði
    Til fyrirmyndar! Vona að sveitarfélög sjái tækifærið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Töfrasprotar

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár