Ræstingafyrirtækin og verkfallið - Sólarkonur fá full laun en Dagakonur ekki

Á annað þús­und starfs­menn vinna við ræst­ingar hjá fyr­ir­tækj­unum Sólar ehf. og Dögum hf., sem sjá um þrif hjá fjöl­mörgum stórum fyr­ir­tækjum og stofn­unum hins opin­bera. Tæplega níu af hverjum tíu eru konur. Sólar ehf heldur úti lág­marks þjón­ustu í dag og greiðir konum og kvám full laun í verk­fall­inu. Dagar gera það ekki en bjóða laun fyrir þær konur sem ætla á bar­áttufundi, að höfðu sam­ráði við yfir­menn sína.

Ræstingafyrirtækin og verkfallið - Sólarkonur fá full laun en Dagakonur ekki
Ræstar út í verk­falli Konur og kvár sem sinna ræst­ingum eru eins og aðra daga flestar ræstar til vinnu í dag. Að minnsta þær sem starfa hjá Dögum hf. Þær fá þó að mæta á launum á skipu­lagða dag­skrá, í sam­ráði við yfir­menn sína. Kvenkyns og kvár í starfs­liði Sólar ehf, ræst­inga­fyr­ir­tækis, fá allan dag­inn greiddan. Mynd: Shutterstock

„Þennan dag er ljóst að Sólar mun veita lág­marks­þjón­ustu og í ákveðnum til­vikum enga þjón­ustu. Við hjá Sólar óskum því eftir stuðn­ingi ykkar í þess­ari bar­áttu og erum þakk­lát fyrir sýndan skiln­ing,“ sagði í bréfi sem Einar Hann­es­son for­stjóri ræst­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Sólar ehf sendi við­skipta­vinum sínum fyrir rúmri viku.

Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa í kringum 400 manns við ræst­ingar ýmissa fyr­ir­tækja og stofn­ana. Lang stærstur hluti, eða um 85 pró­sent, eru konur. Fyr­ir­tækið til­kynnti jafn­framt starfs­mönnum sínum að laun yrðu greidd á kvenna­verk­falls­dag­inn. 

Í dag eru ein­ungis 30 manns við störf hjá fyr­ir­tæk­inu, flestir í störfum á heil­brigð­is­stofn­unum, sem nauð­syn­lega varð að manna.

Einar sagð­ist í sam­tali við Heim­ild­ina þakka það góðu sam­starfi við við­skipta­vini og starfs­fólk að hægt hafi verið að lág­marka við­veru í dag. Konur og kvár sem ekki mæti fái auk dag­inn greiddan, ekki ein­göngu þann tíma sem skipu­lögð dag­skrá er vegna verk­falls­ins.

Það gera ekki öll fyr­ir­tæki, eins og fram hefur komið. Fyr­ir­tækið Dagar hf., sem er eitt stærsta sinnar teg­undar í ræst­inga­þjón­ustu og sinnir meðal ann­ars mörgum stofn­unum ríkis og sveit­ar­fé­laga, ætlar ekki að greiða laun sinna starfs­kvenna- og kvára í dag, nema þá rétt á meðan á skipu­lagðri dag­skrá stendur á boð­uðum úti­fundum. Þetta var tikynnt starfs­mönnum en jafn­framt sagt að „reynt yrði eftir fremsta megni“ að verða við því, vilji starfs­fólk sækja slíka fundi. Starfs­fólk er beðið að ræða útfærslu þess við næsta yfir­mann sem fyrst. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár