Ætlaði að afþakka fréttastjórastarfið strax í mars en var hótað

Þegar Auðun Georg Ólafsson ætl­aði að hætta við að þiggja starf frétta­stjóra Útvarps vorið 2005 þá fékk hann skila­boð sem hann túlk­aði sem hótun. „Þannig að ég upp­lifði að öðrum megin við mig voru brjál­aðir póli­tíkusar en hinum megin brjál­aðir frétta­menn.“

Ætlaði að afþakka fréttastjórastarfið strax í mars en var hótað
Frétta­stjóri í einn dag Tilkynnt var um ráðn­ingu Auðun Georgs Ólafs­sonar í starf frétta­stjóra Útvarps í mars 2005. Hann mætti til starfa 1. apríl sama ár. Sá dagur reynd­ist eini dag­ur­inn sem hann starf­aði hjá rík­is­fjöl­miðl­inum. Mynd: Golli

Auðun Georg Ólafsson segir valda­mikla menn hafa hótað því að það myndi hafa afleið­ingar fyrir hann og hans nán­ustu ef hann gerði alvöru úr því að þiggja ekki starf frétta­stjóra Útvarps vorið 2005. „Það er í raun­inni strax eftir að ég er ráð­inn sem fyrsta reiði­bylgjan skall á. Þá fann ég að að það yrði alls ekki auð­velt að ganga inn í þetta umhverfi. Þótt ég vildi vel var mikil reiði og van­líðan hjá starfs­fólki sem ágerð­ist. Mér fannst alger­lega ófært fyrir mig að stíga inn í þessar aðstæður. Ég ákvað þá að hætta við, ætl­aði ekki að þiggja starfið og lét það ber­ast. Ég fékk þá skila­boð sem ég túlk­aði sem hótun.“

Þetta kom fram í í ítar­legu við­tali við Auðun Georg í síð­asta tölu­blað Heim­ild­ar­innar, um það sem gerð­ist frá því að til­kynnt var um ráðn­ingu hans sem frétta­stjóra Útvarps í byrjun mars 2005 og þangað til að hann mætti í fyrsta og eina skiptið til starfa þann 1. apríl sama ár. 

Aðspurður um hver skila­boðin sem hann fékk hafi verið segir Auðun Georg að þau hafi snú­ist um að það væri of seint fyrir hann að bakka út. „Að það væri ekki hægt. Að þá væri þetta orðið bara gjör­sam­lega stjórn­laus stofnun sem starfs­menn réðu sjálfir yfir. Ég mætti ekki bakka. Ef ég gerði það hefði það mikil eft­ir­mál. Ég myndi finna fyrir afleið­ing­unum út allt lífið og mínir nán­ustu líka. Ég man ekki alveg nákvæm­lega hvernig þetta var orðað en þetta var svona meg­in­inntakið.“

Hann segir að um sím­töl hafi verið að ræða, en að ekk­ert skrif­legt hefði borist honum, hvorki tölvu­póstar né sms-skila­boð. „En ég man að þetta var mjög trú­verð­ugt og ég hugs­aði, já, þetta var aldrei tekið fram í aug­lýs­ing­unni fyrir starfið. Þetta var orðað mjög skýrt.“

Aðspurður um hvort það hafi verið stjórn­mála­menn sem voru að hóta honum segir Auðun Georg að skila­boðin hafi fyrst og fremst borist úr þeirri átt. „Þannig að ég upp­lifði að öðrum megin við mig voru brjál­aðir póli­tíkusar en hinum megin brjál­aðir frétta­menn.“

Ekki valdamenn í dag

Hann man ekki nákvæm­lega hvernig hót­an­irnar voru orð­aðar en að talað hafi verið um að það yrði erfitt fyrir hann að fá annað almenni­legt starf. „Ferlið væri komið of langt, það mætti ekki styggja hags­muna­öfl þarna á bak við. Eins og ég segi þetta var inn­takið þó ég muni ekki orða­lagið nákvæm­lega. Mér var sagt að það yrðu lagðir steinar í götu mína það sem ég ætti eftir ólifað og minna nán­ustu.“

Auðun Georg segir að orða­lagið hafi verið óljóst en að hann hafi líka heyrt hót­an­irnar úr nokkrum öðrum áttum og að þær hafi verið trú­verð­ugar.  Hann vill þó ekki segja frá því hverjir það voru sem hót­uðu honum. „Ég stíg fram til að segja mína sögu, en vil ekki henda neinum fyrir lest­ina. Nefni því ekki nöfn. En þessir menn sem hót­uðu mér, þeir eru ekki valda­menn í dag. Geta ekki valdið mér skaða.“

Auðun Georg segir þó að þetta hafi verið fólk sem hann treysti til þess að vera að segja satt. „Þetta var alveg úr ýmsum áttum og kom flatt upp á mig.
Ég upp­lifði mig mjög einan. Ég hef aldrei verið jafn ein­mana á ævinni.
Ég var bara algjör­lega einn. Það var því ekk­ert annað í stöð­unni fyrir mig en að mæta upp í Útvarps­hús og láta slag standa.“

Átti gamlan ljótan bíl

Það gerði hann 1. apríl 2005, sem varð fyrsti og eini dagur hans í starfi. „Ég mæti þarna fyrsta dag­inn til að hitta útvarps­stjóra og verð­andi sam­starfs­fólk mitt. Ég ákvað að fara í flauelsjakka­föt því mér fannst þau svo­lítið RÚV-leg. Ég átti gamlan, ljótan bíl sem mér fannst ekki nógu flottur fyrir til­efnið og ákvað að vera svo­lítið grand á því og splæsa í far með leigu­bíl í nýju vinn­una.“

Frétta­menn útvarps höfðu, þegar þarna var komið við sögu, sagt að þeir gætu ekki unnið undir stjórn Auðuns Georgs. Hann fund­aði með þeim þennan dag og þar kom sú skoðun enn frekar fram. Í kjöl­farið fór Auðun Georg í við­tal við hádeg­is­fréttir útvarps­ins þar sem hann heldur að frétta­mað­ur­inn sem tók við­tal­inu hafi verið með spurn­ingar í heyrn­ar­tól­inu frá öðrum frétta­mönnum. Aðrir frétta­miðlar greindu í kjöl­farið frá því að Auðun Georg hefði orðið tví­saga í við­tal­inu. Hann fór og bað Boga Ágústs­son, yfir­mann frétta­sviðs RÚV, að leysa sig af eftir við­talið og sendi svo frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að sér væri ekki fært að þiggja starfið. Auðun Georg seg­ist ekk­ert muna eftir því hvernig hann kom sér heim þennan dag. „Ég man ekki hvernig ég komst. Örugg­lega pantað mér leigu­bíl aftur.“

„Jafnmikill leiksoppur og við hin“

Árin liðu svo og frétta­stjóra­málið var reglu­lega rifjað upp í fjöl­miðlum. Auðun Georg segir að í þeim umfjöll­unum hafi ítrekað verið vegið að hans per­sónu og heil­indum. „Í þeim ótelj­andi upp­rifj­unum og frétta­flutn­ingi hefur eng­inn fjöl­mið­ill haft fyrir því að óska eftir minni hlið og hvernig ég upp­lifði þessa daga, ekki fyrr en þið á Heim­ild­inni höfðuð sam­band.“

Bogi Ágústs­son segir í sam­tali við Heim­ild­ina að frétta­stjóra­málið líði honum seint úr minni enda hafi afskipti útvarps­ráðs af því verið for­dæma­laus. Tíu umsóknir bár­ust um starfið og í umsögn Boga, sem var for­stöðu­maður frétta­sviðs RÚV, sem lögð var fyrir útvarps­ráð sagði að finn umsækj­endur, sem allir störf­uðu á frétta­stofu útvarps, kæmu helst til greina þrátt fyrir að allir tíu upp­fylltu hæfn­is­kröfur. Útvarps­ráð, sem var póli­tískt skipað, gerði svo til­lögu um Auðun Georg. Það hafi verið í eina skiptið sem útvarps­ráð hafi tekið ákvörðun þvert gegn vilja frétta­stof­unar og alls Rík­is­út­varps­ins. 

Bogi segir að þetta hafi verið alvar­leg­ustu afskipti útvarps­ráðs á frétta­stof­unni sem hann hafi upp­lifað á 20 ára ferli sem stjórn­andi, fyrst sem frétta­stjóri sjón­varps og svo sem for­stöðu­maður frétta­sviðs. „Hins vegar var það svo að meðan á þessu stóð átt­uðum við okkur ekki á því að Auðun Georg væri jafn­mik­ill leiksoppur og við hin.“

Áskrif­endur Heim­ild­ar­innar geta lesið við­talið við Auðun Georg í heild sinni hér. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár